Innlent

Ráðherrar víki af þingi

Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, þingmaður Samfylkingarinnar.
Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, þingmaður Samfylkingarinnar.
Þingmaður Samfylkingarinnar vill að strax verði gengið í að ráðherrar sitji ekki á Alþingi og varamenn þeirra taki sæti á þingi. Stjórnarflokkarnir leggja mikla áherslu á að frumvarp um stjórnlagaþing verði afgreitt fyrir sumarleyfi Alþingis.

Nú liggur fyrir Alþingi frumvarp um að ef þingmaður sé skipaður ráðherra skuli hann víkja úr þingsæti á meðan hann gegnir ráðherradómi og varamaður hans taki sætið á meðan. Siv Friðleifsdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, er fyrsti flutningsmaður en auk framsóknarmanna eru Pétur H. Blöndal, Sjálfstæðisflokki, og Valgerður Bjarnadóttir, Samfylkingu, meðflutningsmenn.

Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, segir að ekki sé eftir neinu að bíða og hægt væri að færa ráðherrana út af þingi strax í næsta mánuði.

„Ég hef frá því ég settist á þing verið þeirra skoðunar að ráðherrarnir ættu ekki að sitja á þingi og stend fyllilega við það og tel það tímabært," segir Sigríður.

Með þessari breytingu kæmu við núverandi aðstæður tíu nýir þingmenn sem Sigríður segir að ekki veiti af í nefndarstörf, til að afgreiða öll þau mikilvægu mál sem bíði afgreiðslu.

Frumvarp um stjórnlagaþing verði afgreitt fyrir sumarleyfi

Hún eins og aðrir stjórnarliðar leggur líka mikla áherslu á að frumvarp um stjórnlagaþing verði afgreitt fyrir sumarleyfi þingmanna í þessum mánuði.

„Ég held það séu ákveðin vonbrigði hjá almenningi með það að höfum ekki náð að keyra fyrr í gegn stjórnlagaþingið. Þrátt fyrir að það hafi verið full eining um það í Samfylkingunni þá hefur það ekki gengið í gegn. Ég tel mjög mikilvægt að við lögfestum frumvarpið núna í vor þannig að það verði hægt að kjósa í það í haust."

En síðasta vor dagaði frumvarp um stjórnlagaþing uppi í málþófi á Alþingi vegna andstöðu Sjálfstæðismanna. Hvort það endurtekur sig á eftir að koma í ljós.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×