Fótbolti

Rúrik skoraði fyrir OB

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Rúrik Gíslason.
Rúrik Gíslason. Mynd/Valli
OB vann í kvöld 5-3 sigur á bosníska liðinu Zrinjski í fyrri leik liðanna í þriðju umferð undankeppni Evrópudeildar UEFA.

Rúrik Gíslason skoraði fyrsta mark OB í leiknum, aðeins mínútu eftir að Zrinjski komst yfir í leiknum.

OB komst í 5-1 en Bosníumennirnir minnkuðu muninn með tveimur mörkum í síðari hálfleik. Liðin mætast í Bosníu í næstu viku.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×