Viðskipti erlent

Eyjafjallajökull lék British Airways grátt

Öskuskýið úr Eyjafjallajökli lék flugfélagið British Airways grátt, en félagið skilaði 164 milljóna punda tapi á öðrum ársfjórðungi, andvirði um 30 milljarða króna.

Lokun flugvalla vegna eldgossins réð þar miklu og þá höfðu kjaradeilur við starfsfólk jafnframt alvarleg áhrif á rekstur félagsins.

Talsmenn British Airways segjast stefna að því að snúa hallanum í hagnað á árinu, þrátt fyrir mettap á síðasta ári.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×