Innlent

Hótuðu ofbeldi

Rúmlega tvítugur maður hefur verið dæmdur í tíu mánaða fangelsi, þar af sjö á skilorði, fyrir húsbrot, hótanir og rán. Félagi hans var dæmdur í sex mánaða skilorðsbundið fangelsi og sá þriðji var dæmdur til að greiða 80 þúsund króna sekt. Þrír til sem ákærðir voru í málinu, voru sýknaðir.

Þrír menn ruddust inn á heimili tveggja ungra manna með hótunum ef þeir létu ekki verðmæt tæki af hendi. Þeir sögðust bora með borvél í hné þeirra og beindu að þeim hnífi, áður en þeir yfirgáfu húsnæðið með verðmætin.- jss






Fleiri fréttir

Sjá meira


×