Viðskipti erlent

Þjóðsagnakennt úrasafn sir Edmund Hillary á uppboð

Patek Philippe úrið í safni sir Edmund. Það er m.a. útbúið eilífðardagatali og skífu sem sýnir stöðu tunglsins hverju sinni.
Patek Philippe úrið í safni sir Edmund. Það er m.a. útbúið eilífðardagatali og skífu sem sýnir stöðu tunglsins hverju sinni.

Þjóðsagnakennt safn Rolex úra sem áður voru í eigu fjallgöngukappans sir Edmund Hillary verður selt á uppboði í Genf síðar í mánuðinum.

Það er Lady Hillary, ekkja sir Edmund, sem ákveðið hefur að selja þetta einstaka safn. Perlan í því er Rolex Oyster Perpetual frá árinu 1953 en það úr fékk sir Edmund til heiðurs sér eftir að hann kleyf hæsta tind heimsins, Everest fjall, fyrstur manna.

Þetta úr bar sir Edmund síðan þegar hann gekk fyrstur manna þvert yfir Suðurskautið nokkrum árum síðar. Talið er að verðmæti þessa úrs nemi rúmum tveimur milljónum króna.

Af öðrum úrum má nefna Rolex Oyster Perpetul Date sem sir Edmund keypti til að minnast 50 ára afmælis fjallgöngu sinnar á Everest og Rolex Explorer 1 sem hann keypti til að minnast 20 ára afmælis þessa afreks síns.

Dýrasta úrið í safninu er hinsvegar hið afarsjaldgæfa Patek Phillippe, þriðja serían, en þeir sem vilja eignast það þurfa að greiða um 130 milljónir króna fyrir gripinn.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×