Tónlist

Magni lofar stórkostlegri Bræðslu

Sænsk/breska hljómsveitin Fanfarlo spilar á Bræðslunni í sumar. Þetta verður í sjötta sinn sem hátíðin er haldin.
Sænsk/breska hljómsveitin Fanfarlo spilar á Bræðslunni í sumar. Þetta verður í sjötta sinn sem hátíðin er haldin.

Tónlistarhátíðin Bræðslan á Borgarfirði eystri fer fram í sjötta skipti helgina 23.-25. júlí og hefst miðasala í dag. „Þetta verður stórkostlegt," segir skipuleggjandinn, Magni Ásgeirsson, um hátíðina. „Við höfum aldrei verið jafnduglegir við að skipuleggja. Það eina sem á eftir að gera er að smíða sviðið," segir hann.

„Ég vil hvetja fólk til að ná sér í miða. Þetta er ekki eins og á þjóðhátíð því þarna er ekki hægt að troða endalaust inn."

Bræðslan hefur fest sig í sessi sem ein af áhugaverðari stoppi­stöðvum Íslands yfir sumarmánuðina. Í gegnum tíðina hafa komið þar fram Emilíana Torrini, Damien Rice, Belle & Sebastian, Magni, Lay Low, Þursaflokkurinn og Megas og Senuþjófarnir. Í ár mæta til leiks Dikta, Fanfarlo, KK & Ellen, 200.000 Naglbítar og sigurvegarar Músíktilrauna, Of Monsters and Men. Fanfarlo er sænsk/bresk hljómsveit sem hefur vakið mikla athygli upp á síðkastið.

„Hún minnir mig á Belle & Sebastian og Talking Heads. Mér finnst þetta æðisleg hljómsveit," segir Magni. Hún hefur verið á tónleikaferð um Bandaríkin og kom á dögunum fram í spjallþætti Davids Letterman.

Forsala á Bræðsluna hófst í dag á Midi.is og afgreiðslustöðum Midi.is. Verð aðgöngumiða í forsölu er 5.500 krónur og eru 800 aðgöngumiðar í boði. Verð aðgöngumiða við inngang verður 6.500. krónur. - fb

Hér má sjá myndband við eitt vinsælasta lag Fanfarlo.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×