Tónlist

Feldberg órafmögnuð í íslenskri ljósmyndabúð í London

Hljómsveitin Feldberg spilaði í ljósmyndaverslun Höddu Hreiðarsdóttur í Soho-hverfinu í London.
Hljómsveitin Feldberg spilaði í ljósmyndaverslun Höddu Hreiðarsdóttur í Soho-hverfinu í London. Mynd/Stefán Karlsson

Hljómsveitin Feldberg er nýkomin heim frá London þar sem hún tók þátt í kynningarpartíi fyrir safnplötuna Kitsuné Maison Compilation 9 sem er nýkomin út á vegum franska fyrirtækisins Kits­uné Maison. Þar er að finna lagið Dreamin" af fyrstu plötu Feldberg sem kom út fyrir jól.

Hljómsveitin notaði tækifærið og spilaði á nokkrum tónleikum í London, þar á meðal órafmagnað í ljósmyndabúðinni Lomography í Soho-hverfinu. Hún er í eigu Höddu Hreiðarsdóttur og er eina búð sinnar tegundar í London. Benni Hemm Hemm hefur áður stigið þar á svið. „Þetta var voða kósí búð í hjarta Soho. Það var svolítið öðruvísi að spila þarna en samt skemmtilegt," segir Einar Tönsberg, annar helmingur Feldberg.

Hljómsveitin er aftur á leiðinni til Bretlands því í næstu viku spilar hún á tónlistarhátíðinni The Great Escape í borginni Brighton. „Þetta verður mjög skemmtilegt. Við spilum á skemmtilegu sviði og okkur líst mjög vel á þetta," segir Einar. Yfir 350 flytjendur koma fram á hátíðinni, sem hefur verið haldin við góðar undirtektir frá árinu 2006.

Boðskapur Feldberg breiðist víðar út, því plata dúettsins kemur út í Japan 9. júní hjá sama útgáfufélagi og gaf út síðustu tvær plötur Ebergs, sólóverkefnis Einars. - fb

Hér má sjá nýtt Feldberg-myndband við  lagið Sleepy sem hönnuðurinn Ásgrímur Már Friðriksson leikstýrði á dögunum.












Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.