Formúla 1

Massa vill hafa áhrif í titilslagnum

Felipe Massa hefur ekki gengið vel að undanförnu, en stefnir á góðan árangur í lokamótunum þremur.
Felipe Massa hefur ekki gengið vel að undanförnu, en stefnir á góðan árangur í lokamótunum þremur.

Felipe Massa hjá Ferrari ætlar að gera sitt besta í Suður Kóreu  um n æstu helgi til aðstoðar Ferrari í titilslagnum, en Fernando Alonso hjá Ferrari er í öðru sæti í stigamóti ökumanna ásamt Sebastian Vettel sem ekur með Red Bull. Báðir eru 14 stigum á eftir Mark Webber hjá Red Bull í stigakeppninni. Red Bull er í forystu í stigamóti bílasmiða, á undan Mercedes og Ferrari.

Massa ræðir málin á vefsíðu Ferrari samkvæmt frétt á autosport.com.

"Ég var heima í Brasilíu í eina viku og notaði tímann vel til að undibúa mig eins og kostur er fyrir þrjú síðustu mótin. Þau verða mikilvæg fyrir mig persónulega, þar sem það gekk ekki vel hjá mér í tveimur síðustu mótunum. Hinsvegar, sem er mikilvægara, þá mun ég reyna að ná í sem flest stig til að hjálpa Ferrari í báðum stigamótum", sagði Massa á vefsíðu Ferrari.

"Markmið mitt þessa helgina er að ná góðum árangri í tímatökum á laugardag og síðan í keppninni. Ég vill vera í miðri baráttunni um titilinn milli ökumannanna fimm sem eru að keppa um titilinn. Það er það besta sem ég get gert fyrir Ferrari og Fernando á lokasprettinum."

"Ég veit að allir í liðinu, á brautinni og í bækistöðvunum er í rétt gírnum fyrir þrjú síðustu mótin og ég er kappsfullur að gera mitt besta", sagði Massa.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×