Handbolti

Umfjöllun: Lukkan með þeim dönsku

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Alexander Petersson í leiknum í gær.
Alexander Petersson í leiknum í gær. Fréttablaðið/Vilhelm
Þrátt fyrir ótrúlega frammistöðu Björgvins Páls Gústavssonar í marki íslenska landsliðsins gegn Dönum í gær máttu strákarnir okkar sætta sig við tap, 29-28, í síðari vináttulandsleik liðanna í Laugardalshöllinni.

Frammistaða íslenska liðsins var kaflaskipt. Stundum sýndu leikmenn að íslenska liðið getur spilað glimrandi góðan handbolta jafnvel þótt að þeir Ólafur Stefánsson og Guðjón Valur Sigurðsson væru fjarri góðu gamni. Þess á milli datt allur botn úr íslenska liðinu og var þeirra félaga þá sérstaklega saknað í sókninni.

Varnarleikur íslenska liðsins var lengstum ágætur. Liðið spilaði framliggjandi 6-0 vörn sem danska sóknin átti oftar en ekki í miklu basli með. Danirnir voru hins vegar mjög grimmir að refsa með hraðaupphlaupum og skoruðu ellefu slík mörk í gær. Þeir Lars Christiansen og Mikkel Hansen voru í sérflokki í dönsku sókninni og skoruðu til að mynda fyrstu átta mörk Dana í leiknum.

Leikir þessara liða hafa oft verið jafnir og því kom það fáum á óvart að staðan var jöfn í hálfleik, 17-17. Liðin höfðu skipst á að vera með forystuna en í upphafi síðari hálfleiks tók íslenska liðið öll völd á vellinum og komst tvívegis í þriggja marka forystu.

En í stað þess að láta kné fylgja kviði glutraði Ísland möguleikanum á því að stinga af með óöguðum sóknarleik. Sören Rasmussen hafði leyst Niklas Landin af í danska markinu og átti stórleik í síðari hálfleik. Hann var með 50 prósenta markvörslu og varði frá Þóri Ólafssyni á lokasekúndu leiksins. Þar með tryggði hann danska sigurinn.

Langbesti leikmaður Íslands var Björgvin Páll og í raun sorglegt að aðrir leikmenn náðu ekki að nýta sér þann meðbyr. Róbert Gunnarsson var þó mjög öflugur á línunni og skilaði svo sannarlega sínu. Þórir Ólafsson átti góða spretti og þeir Sverre og Vignir í vörninni voru mjög fínir. Flestir aðrir áttu misjafnan leik og hafa oft spilað betur.

Þess ber svo að geta að Aron Pálmarsson skoraði tvö ótrúleg mörk í fyrri hálfleik og sýndi þá af hverju hann var valinn efnilegasti leikmaður þýsku úrvalsdeildarinnar. En eins og aðrir þá missti hann taktinn undir lok leiksins og gerði mistök sem Danirnir voru fljótir að refsa fyrir.

Það mátti ekki sjá mikinn mun á liðunum en í þetta skiptin var lukkan á bandi þeirra dönsku.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×