Lífið

Syngur um þrá og einlægni

Sólstrandagæinn fyrrverandi sendir frá sér sína aðra sólóplötu í byrjun október.
Sólstrandagæinn fyrrverandi sendir frá sér sína aðra sólóplötu í byrjun október.
Jónas Sigurðsson, fyrrverandi Sólstrandagæi, sendir frá sér sína aðra plötu í byrjun október og kemur hún út á vegum Cod Music.

„Ég er búinn að vinna í henni lengi, eða síðan ég kláraði þá síðustu,“ segir Jónas um nýju plötuna sem nefnist Allt er eitthvað.

„Hún skiptist í hlið 0 og hlið 1 eins og gömlu plöturnar. Ég skipti henni í tvennt og þarna eru tvö þema sem eru að kallast á. Annars vegar þrá og hins vegar einlægni,“ segir hann og bætir við að mikill kraftur sé í fyrri hlutanum á meðan hinn sé öllu mýkri. „Ég er að reyna að búa til andstæður, sem er svolítið vandmeðfarið á plötu. Hún þarf að standast sem ein heild og þess vegna er gaman að búa til mótsögn á plötu. Ég ætla að sjá hvort það virkar en maður veit það ekki fyrr en þetta er komið út.“

Síðasta plata Jónasar, Þar sem malbikið svífur mun ég dansa, kom út fyrir jólin 2006 og hlaut mjög góðar viðtökur. Titillag plötunnar og lögin Ofskynjunarkonan og Baráttusöngur uppreisnarklansins á skítadreifurum fengu mikla útvarpsspilun. Þar söng hann um að bylting væri í vændum og gagnrýndi græðgisvæðinguna og kom það á daginn að hann hafði sitthvað til síns máls. Síðastnefnda lagið hefur til að mynda verið mikið spilað í tengslum við mótmælin hér á landi undanfarin misseri.

Spurður hvort einhvern „spádóm“ um framtíð Íslands megi finna á nýju plötunni eins og á þeirri fyrri segir hann svo ekki vera. „Ég er ekkert voða mikið fyrir predikunarmúsík. Mér finnst bara gaman að nota músíkina sem form til að koma á framfæri hugmyndum og pælingum.“

Á síðustu plötu vann Jónas með dönskum tónlistarmönnum, enda bjó hann þar í landi í fimm ár. Núna vann hann með íslenskum tónlistarmönnum og hefur sett saman hljómsveitina Ritvélar framtíðarinnar sem spilar á sínum fyrstu tónleikum á Bræðslunni seinna í mánuðinum. Fyrsta lagið af plötunni, Hamingjan er hér, er komið út og er það fáanlegt ókeypis á síðunni Tónlist.is næstu vikuna. Einnig má hlusta á lagið á síðunni Jonassigurdsson.com.

freyr@frettabladid.is





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.