Fótbolti

Verður Leonardo rekinn næsta sumar?

Henry Birgir Gunnarsson skrifar

Ítalskur vefmiðill heldur því fram í dag að AC Milan ætli sér að reka Leonardo úr þjálfarastólnum næsta sumar og ráða í hans stað annað hvort Rafa Benitez eða Juande Ramos.

Leonardo tók aðeins við liðinu síðasta sumar og byrjaði leiktíðina illa. Milan-liðið hefur síðan vaxið mikið eftir því sem liðið hefur á veturinn.

Liðið er komið í 16-liða úrslit í Meistaradeildinni þar sem það mætir Man. Utd.



 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×