Götusmiðjan vill bætur líkt og Árbót 25. nóvember 2010 06:15 Leiðir þeirra Braga Guðbrandssonar, forstjóra Barnaverndarstofu, og Guðmundar Týs Þórarinssonar, fyrrverandi forstöðumanns Götusmiðjunnar, skildu síðastliðið sumar þegar Götusmiðjunni var lokað.
Hugsanlegt er að ríkið hafi bakað sér bótaskyldu með greiðslu 30 milljóna króna bóta til meðferðarheimilisins Árbótar í Þingeyjarsýslu. Lögfræðingur Götusmiðjunnar segir að samið hafi verið við skjólstæðing sinn á allt öðrum forsendum í sumar og ætlar með málið lengra á grundvelli jafnræðisreglu stjórnarskrárinnar. Í lok júnímánaðar var þjónustusamningi Barnaverndarstofu við meðferðarheimilið Götusmiðjuna rift vegna ásakana um að Guðmundur Týr Þórarinsson (Mummi) hefði haft í hótunum við börn sem voru í vistun á heimilinu. Hinn 15. júlí var síðan undirritaður samningur um starfslok heimilisins, sem fól í sér að Götusmiðjan fékk tæpar 20 milljónir í bætur frá Barnaverndarstofu sem auk þess lagði út um 10 milljónir vegna ógreiddra launa starfsfólks Götusmiðjunnar. Gísli Kr. Björnsson, lögfræðingur Götusmiðjunnar, telur að óeðlilega hafi verið staðið að lokun Götusmiðjunnar. Meintar hótanir Guðmundar Týs í garð ungmennanna hafi til að mynda aldrei verið kærðar til lögreglu þrátt fyrir að þess hafi verið krafist af Guðmundi Tý sjálfum. Af þeim sökum hafi aldrei verið skorið úr því hvort ásakanirnar hafi átt við rök að styðjast eða ekki. Þetta vekur upp spurningar því 1. ágúst barst yfirlýsing frá Guðmundi Tý og Braga Guðbrandssyni um að sættir hefðu náðst. Í yfirlýsingunni kom fram að samkomulagið um starfslok Götusmiðjunnar hefði verið gert í góðri sátt og fæli í sér farsælar málalyktir fyrir alla aðila. Gísli segir að forsendan fyrir starfslokasamningnum hafi verið sú að Guðmundur Týr skrifaði undir þessa yfirlýsingu þótt það hafi verið honum þvert um geð. Gísli segir að í ljósi umfjöllunar Fréttablaðsins undanfarna daga af því hvernig staðið hafi verið að samningum um starfslok meðferðarheimilisins Árbótar hyggist Guðmundur Týr nú leita réttar síns. Samningurinn við Árbót hafi verið gerður á nákvæmlega sama tíma og verið var að semja um starfslok Götusmiðjunnar. Aðferðin við samningana hafi hins vegar verið gjörólík. „Mér finnst þetta óeðlileg stjórnsýsla af ráðherrunum og Barnaverndarstofu, þó af ólíkum ástæðum,“ segir Gísli. „Mér finnst óeðlilegt að ráðherrarnir blandi sér inn í annað málið en ekki hitt. Þeir hefðu í rauninni átt að stíga inn í bæði málin vegna þess að það voru sömu aðstæður uppi í málunum. Að sama skapi finnst mér óeðlilegt af Braga að klára samninginn við okkur vitandi vits að það er verið að gera öðruvísi samning við annan aðila í máli sem er alveg eins. Jafnræðisreglan er því augljóslega ekki virt.“ Gísli segist hafa kallað eftir því að Árni Páll Árnason, þáverandi félagsmálaráðherra, gengi í málið. Það hafi verið gert strax í lok júní. Ekkert svar hafi borist þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir. Spurður hvort Árna Páli hafi verið stætt á því að blanda sér í málið, þar sem Barnaverndarstofa sé sjálfstæð stjórnsýslustofnun segir Gísli: „Af hverju virti hann það þá ekki í máli Árbótar?“ Árni Páll hafi verið farinn að beita sér í máli Árbótar löngu áður en málið hafi formlega verið komið á forræði félagsmálaráðuneytisins. „Það var full ástæða fyrir Árna Pál að stíga inn í samningaviðræðurnar við okkur,“ segir Gísli því samningaviðræðurnar við Barnaverndarstofu hafi lítið gengið. Gísli segir að afgreiðsla stjórnvalda á Árbótarmálinu annars vegar og Götusmiðjumálinu hins vegar endurspegli brotalamir innan stjórnsýslunnar. Í Árbótarmálinu hafi ráðherrar beitt sér mjög ákveðið fyrir því að niðurstaða næðist en ekki í Götusmiðjumálinu. Árbót hafi af þeim sökum fengið greiddar hærri bætur því auk þess að fá 48 milljónir fyrir að starfa út sex mánaða uppsagnarfrest hafi heimilið fengið 30 milljónir króna í bætur. Götusmiðjan hafi þurft að hætta strax starfsemi og því ekki fengið greiddan uppsagnarfrest heldur aðeins tæpar 20 milljónir króna í bætur. Á grundvelli alls þessa telur Gísli ljóst að jafnræðisreglan hafi ekki verið virt. Hann geti ekki betur séð en að ríkið hafi bakað sér bótaskyldu með þessari ólíku málsmeðferð. „Eftir helgi munum við skjóta málinu til umboðsmanns Alþingis og senda öllum þingmönnum erindi þess efnis að mál Götusmiðjunnar verði tekið upp aftur,“ segir Gísli. „Mér finnst ekkert óeðlilegt við það að Alþingi hlutist til um það að réttindi þegnanna séu virt af stjórnsýslunni.“ Gísli segir ekki ákveðið hversu háar bætur Götusmiðjan muni fara fram á verði málið tekið upp á ný. „Eðlilegt er að kröfur Árbótar um fastan útlagðan kostnað séu hafðar til viðmiðunar og líka það að það var maður að hætta starfsemi sem hann hafði sinnt í tólf ár.“ Spurður hvort ekki sé nauðsynlegt að fara í skaðabótamál fyrir dómstólum til að sækja bætur segir Gísli: „Ef við fáum eins fyrirgreiðslu hjá þingmönnum og ráðherrum og Árbót fékk þá á þess ekki að þurfa.“
Mest lesið Kennarar töldu samning í höfn en pólitík hafi spillt fyrir Innlent Nefndin einróma um kosningarnar Innlent Lét Sjúkratryggingar leggja 156 milljónir króna inn á fjölskylduna Innlent Brynjar Níelsson talinn hæfastur til að verða dómari Innlent Hyggst hækka tolla á Evrópuríkin innan tíðar Erlent Tvö hundruð Sunnlendingar veikir eftir þorrablót Innlent Verkföll eru skollin á í þrettán sveitarfélögum Innlent Nýr golfvöllur verði útivistarparadís fyrir Hafnfirðinga Innlent Beyoncé loksins verðlaunuð fyrir bestu plötuna Lífið Lýsir yfir þungum áhyggjum af fyrirætlunum Rastar Innlent Fleiri fréttir Fjögur í framboði til formanns VR Aþenustelpur hafna því alfarið að vera beittar ofbeldi Kennarar töldu samning í höfn en pólitík hafi spillt fyrir Lét Sjúkratryggingar leggja 156 milljónir króna inn á fjölskylduna Tvö hundruð Sunnlendingar veikir eftir þorrablót Lýsir yfir þungum áhyggjum af fyrirætlunum Rastar Verkföll skollin á og Víkingur Heiðar með Grammy Kynna fyrstu verk ríkisstjórnar á blaðamannafundi Nefndin einróma um kosningarnar Brynjar Níelsson talinn hæfastur til að verða dómari Ekki vanhæfur til að leiða nefnd heldur til að fjalla um strandveiðar Verkföll eru skollin á í þrettán sveitarfélögum Nýr golfvöllur verði útivistarparadís fyrir Hafnfirðinga Fundi slitið og verkföll hefjast á morgun Segir úlfalda gerðan úr mýflugu Rof á þjónustu við fatlaða opinberi slæma forgangsröðun stjórnvalda Góð samskipti við Bandaríkin gríðarlega mikilvæg 100 gráðu heitt vatn fannst í Reykholti í Bláskógabyggð „Þetta kemur auðvitað bara mjög illa við fjölskyldulífið“ Tollastríð, kennaraverkfall og hamborgarar Grunur um matarborna sýkingu á þorrablóti Vont veður geti stytt tíma til rýmingar Óbreytt staða í Karphúsinu Hættir sem formaður Siðmenntar Sakar Helgu um „helvítis lygar“ Um 500 nýjar íbúðir byggðar í Árnesi í Skeiða- og Gnúpverjahreppi Grænlendingar í sókn frekar en vörn þökk sé Trump Þung staða og „ekki hægt að útiloka“ verkföll í fyrramálið Hvað þýðir tollastríð Trumps fyrir Ísland? Hagræðingartillögur, styrkir til flokkanna og Grænland á Sprengisandi Sjá meira