Viðskipti erlent

Bútar niður Turner-verk, selur og grefur upphæðina á Íslandi

Listamaðurinn Bill Drummond ætlar að búta niður listaverkið A Smell of Sulphur in the Wind eftir landslagslistamanninn Richard Long sem hlaut hin virtu Turner-verðlaun fyrir verkið árið 1989. Drummond ætlar að selja hvern bút á dollar og grafa svo heildarupphæðina niður í jörð á Íslandi á þeim stað sem var Long innblástur fyrir listaverkið.

Samkvæmt frétt um málið á Timesonline verður A Smell of Sulphur in the Wind, eða Brennisteinsangan í Vindinum, bútað niður í 20.000 litla þríhyrninga sem seldir verða á listasýningunni Affordable Art Fair í London um helgina. Bill Drummond keypti verið á 20.000 dollara á seinnihluta tíunda áratugarins á síðustu öld.

Sérstökum gjaldeyrisbás verður komið fyrir á sýningunni þar sem gestir geta skipt pundum sínum í dollaraseðla.

Fram kemur í fréttinni að Drummond ætlar að búa til nýtt listaverk sem verður ljósmynd af staðnum á Íslandi þar sem dollararnir verða grafnir og Long fékk hugmyndir sínar að A Smell of Sulphur in the Wind með Turner verkinu sjálfu í forgrunni. Hann ætlar að hengja þá mynd upp í svefnherbergi sínu og hefur gefið því listaverki nefnið A Smell of Money Underground eða Angan af Peningum Neðanjarðar.

Long var fjórum sinnum tilnefndur til Turner-verðlaunanna áður en hann hlaut þau árið 1989. Það fylgir ekki með í fréttinni hvar nákvæmlega á Íslandi dollararnir verða grafnir niður.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×