Innlent

Tilgangurinn að veita saksóknara aðhald

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Birgir Ármannsson verður fulltrúi Sjálfstæðisflokksins  í saksóknaranefnd Alþingis. Mynd/ Anton.
Birgir Ármannsson verður fulltrúi Sjálfstæðisflokksins í saksóknaranefnd Alþingis. Mynd/ Anton.
Þingflokkur Sjálfstæðisflokksins ákvað að bjóða fram fulltrúa í saksóknaranefnd Alþingis sem kjörin var í dag. Engu að síður greiddu allir þingmenn flokksins atkvæði gegn ákæru gegn Geir Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, þegar atkvæðagreiðsla fór fram í lok síðasta mánaðar. Fulltrúi Sjálfstæðisflokksins í nefndinni verður Birgir Ármannsson.

„Landsdómslögin gera ráð fyrir því að kosið sé í þessa nefnd hlutfallskosningu og af því má draga þá ályktun að hugsunin á bakvið sé sú að nefndin endurspegli mismunandi sjónarmið innan þingsins," segir Birgir Ármannsson í samtali við Vísi. „Í ljósi þess að nefndin hefur ekki síst það hlutverk að fylgjast með störfum saksóknara og veita eftir atvikum aðhald þá var það niðurstaða þingflokks sjálfstæðismanna að bjóða fram fulltrúa," segir Birgir. Hann segir að afstaða þingmanna Sjálfstæðisflokksins til málsóknarinnar liggi alveg ljós fyrir en í ljósi þess hvernig nefndin sé hugsuð og hvernig hún sé skipuð hafi þingflokkurinn ekki talið annað fært en að eiga þar fulltrúa.

Birgir tekur undir þær athugasemdir sem Andri Árnason, lögmaður Geirs Haarde, gerði við forseta Alþingis um ágalla á málshöfðuninni vegna þess að kjósa hefði átt saksóknara áður en síðasta þingi lauk í lok september. „Mér finnst augljóst að lögin gera ráð fyrir því að kjör saksóknara hefði átt að fara fram annað hvort samhliða eða strax í kjölfar ákvörðunar um ákæru," segir Birgir. Hann segir að nú verði það landsdóms að ákveða hvort þessi formgalli muni hafa áhrif á framgang málsins.

Eins og fram hefur komið í dag kaus Alþingi Sigríði Friðjónsdóttur saksóknara og Helga Magnús Gunnarsson varasaksóknara vegna málshöfðunarinnar gegn Geir Haarde.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×