Formúla 1

Schumacher styður atferli Ferrari, sem braut reglur FIA

Michael Schumacher hjá Mercedes.
Michael Schumacher hjá Mercedes. Mynd: Gety Images

Michael Schumacher hjá Mercedes hefur fullan skilning á aðgerðum Ferrari á Hockenheim-brautinni í gær, þar sem Ferrari virtist láta Felipe Massa hleypa Fernando Alonso framúr sér. Trúlega til að hann fengi fleiri stig í stigamótinu, en hann hafði fleiri stig fyrir mótið.

"Ég hef verið gagnrýndur fyrir nákvæmlega sama hlut og skil þetta 100 prósent. Ég hefði gert nákvæmlega það sama í þeirra sporum," sagði Schumacher í samtali við BBC en autosport.com greinir frá þessu í dag.

"Þegar öllu er á botninn hvolft, þá erum við að keppa um meistaratitla og það er aðeins einn sem getur orðið meistari. Ef mál þróuðust þannig að Ferrari-menn töpuðu titlinum á þessum aukastigum í lok ársins hljóta allir að spyrja af hverju þessu hafi ekki verið stýrt betur?"

Schumacher nefndi að síðustu ár hafi verið liðsskipanir í lokamótum til að tryggja titil og það sé ekkert réttlætanlegra.

Schumacher var þátttakandi í atviki árið 2002 í Austurríki sem varð til þess að liðsskipnir voru bannaðar. Þá skiptust hann og Rubens Barrichello hjá Ferrari á sætum, rétt fyrir endamarkið og FIA setti bann á liðsskipanir eftir það.

Schumacher telur að liðsskipunum sé enn beitt og það þurfi að gera það án þess að eftir því sé tekið. Markmiðið sé að landa titlum.

"Í síðustu keppni var liðsskipun beitt og allir samþykkja það. Ég get skilið að þegar við beittum þessu (hjá Ferrari) þá hafi það verið ónauðsynlegt, þar sem við vorum í forystuhlutverki með miklum mun. Ég get verið sammála því að hluta til. En ég er sammála því sem er í gangi. Við verðum að gera þetta, en ekki á of augljósan hátt. En það er aðeins eitt markmið - að ná titlum," sagði Schumacher.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×