Lífið

Cowell gerir kaupmála

Simon Cowell.
Simon Cowell.

Idoldómarinn alræmdi Simon Cowell er á leið upp að altarinu með sinni heittelskuðu Mezhgan Hussainy. Eins og alsiða er á meðal stjarnanna hefur hann rissað upp kaupmála svo stúlkan geti ekki hlaupist á brott daginn eftir brúðkaupið með helming eigna hans, sem eru víst töluverðar.

Samkvæmt heimildum mun kaupmálinn vera á þá leið að Mezhgan fær 33 milljónir punda endist hjónabandið í fimm ár eða skemur. Hún fær hins vegar 700 þúsund pund á ári fyrir hvert ár sem hún heldur það út með Cowell.

Hann er kannski ekki sá þægilegasti í sambúð ef eitthvað er að marka framkomu hans á skjánum en fyrir 700 þúsund pund á ári er án efa hægt að þreyja þorrann í nokkur ár.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.