Innlent

Ætla að kafa niður að tveimur skipsflökum

Kolkrabbinn Octopus, eða Kolkrabbinn, er gríðarlegt mannvirki. Um borð eru meðal annars tveir kafbátar og er annar þeirra með svefnpláss fyrir átta manns í allt að tvær vikur. 
Fréttablaðið / anton
Kolkrabbinn Octopus, eða Kolkrabbinn, er gríðarlegt mannvirki. Um borð eru meðal annars tveir kafbátar og er annar þeirra með svefnpláss fyrir átta manns í allt að tvær vikur. Fréttablaðið / anton
Risasnekkjan Octopus, sem er í eigu auðjöfursins Pauls Allen, kom til landsins í gær og lá við akkeri í ytri höfninni í Reykjavík fram á kvöld. Þá stóð til að hún legðist við festar við Miðbakka. Ráðgert er að snekkjan verði hér í sex daga.

Mikil leynd ríkir yfir ferð snekkjunnar. Hún er ein sú stærsta í heimi, 126 metrar á lengd eða um 50 metrum lengri en Herjólfur. Snekkjan er meðal annars búin tveimur kafbátum.

Skipverjar á Octopus hyggjast kafa niður að tveimur skipsflökum; eftirlitsskipinu Hamilton og olíuskipinu Shirlon. Báðum skipunum var sökkt í seinni heimsstyrjöldinni. Þá munu skipverjar hafa kannað möguleikann á leyfi til köfunar í Þingvallavatni.

Um miðjan dag í gær hafði Fornleifavernd ríkisins ekki fengið upplýsingar um fyrirætlanir áhafnar Octopus. Kristín Huld Sigurðardóttir, forstöðumaður stofnunarinnar, gagnrýndi það harkalega í samtali við Fréttablaðið, sagðist hafa verið í sambandi við áhöfnina en verið neitað um allar upplýsingar. Heimsókn snekkjunnar hafi verið komin inn á borð nokkurra stofnana og ráðuneyta fyrir löngu síðan, og nefndi í því sambandi utanríkisráðuneytið, dómsmálaráðuneytið og Umhverfisstofnun. Engin þessara stofnana hafði haft samband við hana fyrr en þegar líða fór á kvöldið.

„Það gleymdist að tala við okkur en við hefðum kosið að þeir hefðu gert það,” segir Kristín Huld. Nú sé hins vegar búið að tryggja það að stjórnsýslan sé rétt og upplýsa áhöfnina um þau lög sem gilda um þjóðminjar.

„Ef skip eru eldri en hundrað ára eða friðlýst þarf leyfi frá okkur,“ segir Kristín Huld en slíku sé ekki til að dreifa með flökin af Hamilton og Shirlon. - sh / kh



Fleiri fréttir

Sjá meira


×