Viðskipti erlent

Ríkasti maður Indlands fluttur í hús á 27 hæðum

Ambani og eiginkona hans eiga þrjú börn. Auk þeirra verður 600 manna starfslið í húsinu.
Ambani og eiginkona hans eiga þrjú börn. Auk þeirra verður 600 manna starfslið í húsinu.
Mukesh Ambani, ríkasti maður Indlands, flutti í dag nýtt hús ásamt fjölskyldu sinni. Ekki er um hefðbundið einbýlishús að ræða því nýja húsið er á 27 hæðum og á þakinu er ekki einn heldur þrír þyrlupallar. Húsið er metið á 630 milljónir punda eða jafnvirði um 111 milljarða íslenskra króna.

Í húsinu er auk fjölmargra gestaherbergja líkamsræktarstöð, danssalur, dansstúdíó, hljóðver og bíósalur sem tekur 50 manns í sæti. Í bílastæðahúsinu er pláss fyrir 160 bifreiðar.

Auk þess að vera ríkasti maður Indlands er Ambani fjórði ríkasti maður heims. Manmohan Singh, forsætisráðherra landsins, hvatti nýverið efnameiri íbúa landsins til að sýna hófsemi og vera öðrum til fyrirmyndar hvað það varðar. Ambani hefur greinilega ekki tekið þau orð sérstaklega til sín.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×