Viðskipti erlent

Innspýting er nauðsynleg

Bernanke á bankaráðstefnu í Þýskalandi.
Bernanke á bankaráðstefnu í Þýskalandi. Mynd/AP

Ben Bernanke, seðlabankastjóri Bandaríkjanna, vísar á bug allri gagnrýni á áform bankans um að kaupa ríkis­skuldabréf fyrir 600 milljarða dala.

Á ráðstefnu í Frankfurt í Þýskalandi sagði hann þetta nauðsynlegt til að draga úr atvinnuleysi og örva atvinnulífið. Annars mætti búast við að mikið atvinnuleysi yrði við lýði árum saman.

Áform bankans hafa verið harðlega gagnrýnd, bæði innan Bandaríkjanna og í öðrum löndum. - gb








Fleiri fréttir

Sjá meira


×