Handbolti

Valur lék sér að Víkingi - líka auðvelt hjá Stjörnunni

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Hrafnhildur Skúladóttir.
Hrafnhildur Skúladóttir.

Valur vann ótrúlega auðveldan sigur á Víkingi, 44-13, þegar liðin mættust að Hlíðarenda í dag. Valur leiddi með 14 mörkum í hálfleik, 20-6.

Alls skoruðu tólf leikmenn fyrir Val í dag en aðeins fjórum Víkingsstúlkum lukkaðist að koma boltanum í netið hjá Valsstúlkum. Ótrúlegir yfirburðir og Valur sem fyrr á toppnum.

Stjarnan vann líka tiltölulega fyrirhafnarlítinn sigur á HK í Mýrinni þar sem Elísabet Gunnarsdóttir fór á kostum á línunni hjá Stjörnunni.

Úrslit:

Stjarnan-HK  27-18

Mörk Stjörnunnar: Elísabet Gunnarsdóttir 9, Harpa Sif Eyjólfsdóttir 5, Aðalheiður Hreinsdóttir 4, Þorgerður Anna Atladóttir 4, Jóna Sigríður Halldórsdóttir 3, Alina Tamasan 1, Esther Ragnarsdóttir 1.

Mörk HK: Lilja Lind Pálsdóttir 5, Elín Anna Baldursdóttir 4, Elísa Ósk Viðarsdóttir 3, Elva Björg Arnardóttir 3, Valgerður Ýr Þorsteinsdóttir 2, Heiðrún Helgadóttir 1.

Valur-Víkingur  44-13 (20-6)

Mörk Vals: Hrafnhildur Skúladóttir 6, Anna Úrsula Guðmundsdóttir 6, Arndís María Erlingsdóttir 5, Kristín Guðmundsdóttir 5, Rebekka Rut Skúladóttir 4, Soffía Rut Gísladóttir 4, Karólína Gunnarsdóttir 4, Hildigunnur Einarsdóttir 3, Katrín Andrésdóttir 3, Íris Ásta Pétursdóttir 2, Nína K. Björnsdóttir 1, Brynja Steinsen 1.

Mörk Víkings: Guðný Halldórsdóttir 6, Helga Lára Halldórsdóttir 3, Guðríður Jónsdóttir 2, Berglind Halldórsdóttir 2.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×