Erlent

Reyndi að gleypa eista gamals kærasta

Óli Tynes skrifar
Namm namm.
Namm namm.

Tuttugu og fjögurra ára gömul bresk kona hefur verið dæmd í tveggja og hálfs árs fangelsi fyrir að rífa annað eistað af gömlum kærasta sínum.

Amanda Monti og Geoffrey Jones hættu að vera saman í byrjun maí á síðasta ári. Það var Geoffrey sem batt enda á sambandið.

Á fréttavef BBC fréttastofunnar segir að þau hafi þó haldið áfram að vera góðir vinir. Og 30 maí sótti hún hann í samkvæmi og fór með honum á heimili hans ásamt nokkrum öðrum vinum.

Þar leitaði Amanda á Geoffrey en hann leitaði undan. Því reiddist Amanda svo að hún greip um kynfæri hans utan klæða og rykkti í.

Fyrir rétti sagði Geoffrey að átakði hefði verið svo rosalegt að nærbuxur hans hefðu farið niður.

Hann hafi verið nakinn fyrir neðan mitti og fundið fyrir óbærilegum sársauka. Annar gestur sagði að hann hefði séð Amöndu stinga öðru eista Geoffreys upp í sig og reyna að gleypa það.

Hún gafst þó upp við það og skyrpti því út úr sér. Annar gestur greip það og rétti að Geoffrey með orðunum: -Þú átt þetta.

Læknum tókst ekki að koma eistanu aftur á sinn stað.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×