Innlent

Víkur af lista framsóknarmanna

Að sögn Guðrúnar komu viðbrögð sumra flokksmanna komu sér „vægast sagt á óvart.
Að sögn Guðrúnar komu viðbrögð sumra flokksmanna komu sér „vægast sagt á óvart.

Guðrún Valdimarsdóttir, sem skipaði annað sætið á lista framsóknarmanna fyrir komandi borgarstjórnarkosningar hefur ákveðið að verða við ósk oddvita flokksins og víkja af listanum.

„Oddviti Framsóknarmanna í Reykjavík, með umboði stjórnar kjördæmissambandsins, hefur óskað eftir því að ég, Guðrún Valdimarsdóttir, víki sæti af framboðslista flokksins fyrir komandi borgarstjórnarkosningar," segir í tilkynningu frá Guðrúnu.

Ennfremur segir Guðrún: „Á fundi með trúnaðarmönnum flokksins nýverið vakti ég, að eigin frumkvæði, máls á þeirri staðreynd að fyrirtæki, sem er að hluta til í eigu eiginmanns míns, er nefnt á nafn í skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis. Þetta gerði ég í þeim tilgangi að fyrirbyggja misskilning í röðum framsóknarmanna þar sem margir þeirra eru illa brenndir af spillingarumræðu fortíðar."

Guðrún segir að umrætt fyrirtæki heiti Miðbæjareignir og átti það í viðskiptum við Icebank. „Stjórnendur þess höfðu fulla trú á íslenska bankakerfinu í árslok 2007 og tóku tilboði Icebank um að vera aðili að endurhverfum viðskiptum. Miðbæjareignir töpuðu 160 milljónum króna, sem félagið lagði inn að handveði hjá Icebank sem skuldatryggingu vegna 8 milljarða króna láns frá Icebank til Glitnis. Á þeim tíma var skuldatrygging í slíkum viðskiptum 2%, enda var Glitnir með mjög hátt lánshæfismat hjá matsfyrirtækjum. Samningar á borð við þennan voru algengir og gerðir með samþykki Fjármálaeftirlitsins. Miðbæjareignir eru nefndar á nafn í skýrslunni vegna þess að fyrirtækið veitti góðfúslega upplýsingar um viðskiptin til að auðvelda Rannsóknarnefndinni störf sín. Miðbæjareignir sæta ekki opinberri rannsókn."

Viðbrögð flokksmanna komu á óvart

Að sögn Guðrúnar komu viðbrögð sumra flokksmanna komu sér „vægast sagt á óvart. Ákveðinn hópur gekk strax í það verk að reyna að gera mína persónu tortryggilega í annarlegum tilgangi. Það er greinilegt að gamla eignarhaldsfélag flokksins í Reykjavík, sem beið lægri hlut í prófkjöri í nóvember sl., ætlar ekki að una sér hvíldar fyrr en það nær völdum á ný. Það vílar ekki fyrir sér að bera út gróusögur og vega að mannorði mínu."

„Ég segi mig af lista flokksins og úr öllum trúnaðarstörfum á vegum hans þ.m.t. formennsku í Félagi framsóknarkvenna í Reykjavík. Ég óska Einari Skúlasyni oddvita alls hins besta í komandi kosningum," segir Guðrún að lokum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×