Fótbolti

Glæsimark Gylfa - myndband

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Gylfi fagnar markinu í dag.
Gylfi fagnar markinu í dag.

Landsliðsmaðurinn Gylfi Þór Sigurðsson opnaði í dag markareikning sinn hjá þýska félaginu Hoffenheim. Hann skoraði þá síðara mark liðsins í 2-2 jafntefli gegn Kaiserslautern.

Gylfa var þá skipt af bekknum og hann fór nánast beint í það að taka aukaspyrnu. Sú spyrna hafnaði netinu eftir að markvörðurinn tók áhættuna á að því að fara í nærhornið.

Hægt er að sjá mark Gylfa hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×