Enski boltinn

Mirror: Kenny Huang enn að reyna að kaupa Liverpool í gegnum Mill

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Nafn Kenny Huang er skyndilega aftur komið í umræðuna.
Nafn Kenny Huang er skyndilega aftur komið í umræðuna. Mynd/AP

Enska göturitið The Mirror er með athyglisverða kenningu um hver eignist Liverpool að lokum ef vogunarsjóðurinn Mill Financial greiði skuld félagsins við RBS-bankann.

Eins og áður hefur komið fram mun Tom Hicks, annar eiganda Liverpool, nú vera að reyna að koma sínum hlut í félaginu yfir á bandaríska vogunarsjóðinn Mill Financial.

Sami vogunarsjóður mun þegar eiga hlut George Gillett í félaginu eftir að hann tók yfir lánaskuldbindingu Gillett upp á 75 milljónir punda í ágúst síðastliðnum.

Mill mun vera reiðbúið að greiða upp skuld Liverpool við RBS-bankann sem nemur 240 milljónum punda auk 40 milljónum punda í gjöld. Þar með yrði Liverpool laust við skuldbindingar sínar við RBS-bankann og Mills gæti eignast félagið að fullu.

Samkvæmt The Mirror mun Kínverjinn Kenny Huang, sem áður hefur lýst yfir áhuga á Liverpool, vera reiðubúinn á bak við tjöldin til að kaupa Liverpool af Mill Financial og þannig eignast félagið.

Það er þó ólíklegt að af þessu verði, eins og kemur fram í sömu grein í The Mirror. Meirihluti stjórnar Liverpool vill selja bandaríska eignarhaldsfélaginu NESV félagið og hafa þessir aðilar gert með sér samning sem er bindandi fyrir báða aðila. Samningurinn er sagður algerlega pottþéttur.

Samkvæmt því er NESV nú þegar búið að eignast Liverpool og að það eigi aðeins eftir að ganga frá formsatriðum. Breskir dómstólar hafa nú tvívegis úrskurðað stjórn Liverpool í hag í þessu máli.

Martin Broughton, stjórnarformaður Liverpool, sagðist vera vongóður um að hægt verði að ganga frá sölunni í dag en til þess þurfi að aflétta lögbanni sem sett var á söluna í gær.

Sú lögbannskrafa var sett af dómstóli í Texas-fylki í Bandaríkjunum af beiðni Tom Hicks og George Gillett. Nú hafa þeir hins vegar dregið lögbannskröfuna til baka.

Það virðist því nákvæmlega ekkert því til fyrirstöðu að stjórn Liverpool geti gengið frá sölunni og að NESV eignist félagið.

Stjórn ensku úrvalsdeildarinnar hefur þegar veitt NESV öll tilskyldin leyfi til að eiga félag í deildinni. Mills og Huang, hins vegar, standa ekki svo vel og því virðist NESV vera langt á undan í kapphlaupinu um Liverpool.

Allt snýst þetta um skuld Liverpool til RBS-bankann. Sú skuld á að gjaldfalla í dag. Ef enginn greiðir hana upp og hún gjaldfellur þarf Liverpool að fara í greiðslustövðun. Það vill enginn því það þýðir að níu stig verða sjálfkrafa dregin af liðinu í stöðutöflu ensku úrvalsdeildarinnar.

Það er enn mörgum spurningum ósvarað og sjálfsagt verið að vinna að málinu hörðum höndum á bak við tjöldin á mörgum vígstöðum þessa stundina. Ekkert hefur heyrst frá knattspyrnufélaginu Liverpool enn sem komið er en það er frekari tíðinda að vænta af málinu í dag.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×