Viðskipti innlent

Vísitala framleiðsluverðs lækkar

Mynd/Vilhelm Gunnarsson
Vísitala framleiðsluverðs í júlí lækkaði um 3,3% frá júní. Miðað við júlí 2009 hefur vísitala framleiðsluverðs hækkað um 6,1%, að því er fram kemur á veg Hagstofu Íslands.

Þar kemur jafnframt fram að vísitala framleiðsluverðs fyrir sjávarafurðir hafi lækkað um 0,2% frá fyrri mánuði og vísitala fyrir stóriðju lækkaði um 8,2%. Vísitalan fyrir matvæli hækkaði um 0,4% og vísitala fyrir annan iðnað lækkaði um 1,6%.

Vísitala framleiðsluverðs fyrir vörur sem framleiddar voru og seldar innanlands lækkaði um 0,2% milli mánaða en vísitala fyrir útfluttar afurðir lækkaði um 4,2%.

Miðað við júlí 2009 hefur vísitala framleiðsluverðs hækkað um 6,1% en verðvísitala sjávarafurða um 0,1%. Á sama tíma hefur verð á afurðum stóriðju hækkað um 17,8% en matvælaverð hefur hækkað um 2,5%.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×