Lífið

Friðrik Dór sendir frá sér sitt fyrsta myndband

Söngvarinn Friðrik Dór hefur gefið frá sér sitt fyrsta myndband. Það er við lagið Fyrir hana. Hann frumsýndi myndbandið á Óliver síðastliðinn Fimmtudag og fékk góðar undirtektir.

Það eru þeir Einar Smárason, Einar Bragi Rögnvaldsson og Fannar Scheving Eðvarsson sem gerðu myndbandið en þeir kumpánar gerðu einnig myndbandið lagið Jealousy með Haffa Haff sem vakti mikla athygli.

Ísland í dag hitti Friðrik Dór og ræddi við hann um nýja myndbandið, nýju plötuna sem er væntanleg og leik sinn í myndbandinu hjá Steinda Jr.

Hægt er að sjá nýja myndbandið á Youtube hér. Og horft á Ísland í dag með því að klikka á myndskeið með frétt hér fyrir ofan.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×