Messi og Maradona stíga á sviðið í dag Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 12. júní 2010 08:00 Maradona. AFP
HM-veislan hófst í Suður-Afríku í gær en hafi leikir gærdagsins verið forréttir eru kræsingar á boðstólum þegar aðalrétturinn verður borinn fram í dag. Þá stíga á sviðið tvö stórveldi í knattspyrnunni – England og Argentína. Tveir leikir fara fram í B-riðli. Suður-Kórea og Grikkland eigast við í fyrsta leik dagsins en klukkan 14.00 mætast lið Argentínu og Nígeríu. Margir hafa beðið spenntir eftir því að sjá hvernig goðsögninni Diego Maradona reiðir af en hann er nú í þjálfarahlutverki hjá Argentínu. Margir hafa borið saman þær listir sem hann lék á knattspyrnuvellinum á sínum tíma við Lionel Messi sem af mörgum er talinn besti knattspyrnumaður heims í dag. „Ég vildi sannarlega sjá það. Ég kynni að meta það ef hann hefði sömu áhrif á heimsmeistarakeppnina og ég gerði árið 1986," sagði Maradona þegar hann spurði hvort Messi gæti leikið eftir afrek Maradona þegar hann vann heimsmeistaratitilinn með argentínska landsliðinu í Mexíkó nánast einn síns liðs. „En að baki Lionel er heilt lið sem ætti að styðja við bak hans. Þegar liðið frá 1986 og árangur þess er skoðaður má sjá að þetta snerist ekki bara um sóknarmennina þó svo að það hafi verið þeir sem skoruðu mörkin," sagði Maradona. „Ég óska þess með öllu mínu hjarta að Messi fái tækifæri til að sýna allar hans bestu hliðar og spili leiki lífs síns." Maradona sagði einnig að hann væri ekki jafn stressaður nú og hann var sem leikmaður á sínum tíma. „Ég er alveg jafn ástríðufullur í dag og ég var á sínum tíma en ég hef trú á þeim 23 leikmönnum sem ég er með. Ég mun lifa og deyja með þessum 23 leikmönnum. Á morgun [í dag] munum við byrja að leggja grunninn að því að láta drauma okkar rætast."Bið Englendinga á enda Englendingar hafa beðið lengi eftir því að HM byrji – og sérstaklega að sjá hvernig liðið lítur út undir stjórn Ítalans Fabio Capello. Liðið labbaði nánast í gegnum undankeppnina en á undanförnum vikum hafa meiðsli sett strik í reikninginn og margir efast um að þetta verði ár Englendinganna. Fyrsta ráðgátan er hvernig Capello mun stilla upp byrjunarliðinu. Enskir fjölmiðlar halda því fram að meira að segja leikmenn viti litlu meira en almenningur hverjir munu verða í eldlínunni í dag. Allir 23 leikmenn liðsins eru þó heilir heilsu og æfðu á leikvanginum í Rustenburg í gær - meira að segja Ledley King sem á við krónísk hnémeiðsli að stríða. Ekki er ólíklegt að hann verði við hlið John Terry í hjarta varnarinnar í dag í fjarveru Rio Ferdinand sem þurfti að draga sig úr hópnum fyrr í vikunni. Robert Green er sagður vera líklegastur til að standa í markinu. En mörgum spurningum er enn ósvarað. England féll úr leik í fjórðungsúrslitum á HM í Þýskalandi fyrir fjórum árum og Frank Lampard sagði liðið búa að þeirri reynslu. „Það er jafn mikið sjálfstraust í liðinu nú og þá – ef ekki meira vegna þess að við erum reyndari nú," sagði Lampard í gær. „Það kann vel að vera að fólki finnist að við getum náð langt en það erum við sem þurfum að leggja okkur fram í leikjunum. Við vitum vel hversu erfitt þessi keppni er. Ég á von á því að þetta verði í síðasta sinn sem ég spila á HM og við munum gera allt sem í okkar valdi stendur til að ná eins góðum árangri og mögulegt er."
HM 2010 í Suður-Afríku Mest lesið Kjartan Atli lætur af störfum Körfubolti Indverjar brjáluðust út í Messi og brutust inn á völlinn Fótbolti Í beinni: Liverpool - Brighton | Reyna að lægja öldurnar í ólgusjó Enski boltinn Sakna Orra enn sárt og vandræðin aukast Fótbolti Mesta heillaskref ferilsins að hafa verið rekinn Enski boltinn Dýrmætur tími með börnunum áður en alvaran tekur við Fótbolti Körfuboltakvöld í áfalli yfir vörn Álftaness: „Bara kjánalegt að horfa á þetta“ Körfubolti Spara margar milljónir vegna ráðningar Rúnars Handbolti Fimmtugur og fúlskeggjaður Svíi stal senunni á HM Sport Stjarna Guðjóns fer varlega og mun ekki mæta Íslandi á EM Handbolti Fleiri fréttir Cecilía fagnaði stórsigri gegn erkifjendunum Vigdís Lilja lét toppsætið af hendi Í beinni: Chelsea - Everton | Von á hörku leik á Brúnni Í beinni: Liverpool - Brighton | Reyna að lægja öldurnar í ólgusjó Katla í markaskónum og Ingibjörg hélt hreinu Stöngin inn hjá Ásdísi skilaði sigri Mesta heillaskref ferilsins að hafa verið rekinn Indverjar brjáluðust út í Messi og brutust inn á völlinn Dýrmætur tími með börnunum áður en alvaran tekur við Sakna Orra enn sárt og vandræðin aukast Varalesturinn flæktist fyrir þýska tvíeykinu „Held að ég gæti ekki hætt í fótbolta“ Salah snýr aftur eftir sáttafundinn Þjálfari meistaranna á hálum ís Axel verður áfram hjá Aftureldingu 38 ára Jamie Vardy að skrifa söguna fyrir enska leikmenn á Ítalíu Launað ríkulega fyrir að koma Norðmönnum á HM Kveður pabba sinn í Laugardalnum og fer til FH Sólin komin upp á ný hjá Selmu Sól eftir krefjandi ár Isak tæpur og Gakpo frá Freyr ekki hrifinn af „hrokafullum dómara“ Rooney var hótað lífláti eftir að hann fór til Man Utd Breytti um nafn til að „sýna þeim fingurinn“ „Félag sem var í basli með að ná endum saman og greiða laun á réttum tíma“ Skrýtið og taktlaust: „Ég er ekkert sátt með niðurstöðuna“ Slot fundar með Salah í dag: „Mun ákvarða hver næstu skref verða“ Saka FIFA um okurverð á miðum á HM næsta sumar „Liverpool hefði ekkert unnið ef það væri ekki fyrir Mo Salah“ Fanndís kveður sviðið: „Ég er búin að fella nokkur tár“ Kærasta Haaland hefur fengið nóg Sjá meira