Handbolti

Einar með tvö í tapi gegn Hamburg

Hjalti Þór Hreinsson skrifar
Einar Hólmgeirsson skoraði tvö mörk fyrir Ahlen-Hamm sem tapaði stórt fyrir Hamburg í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld.

Einar gekk í raðir Ahlen-Hamm í sumar en það átti aldrei möguleika í stórlið Hamburg sem er með eitt besta lið Þýskalands.

Lokatölur leiksins voru 36-21 fyrir Hamburg en Hans Lindberg skoraði tíu mörk fyrir Hamburg. Ahlen-Hamm er nýliði í deildinni.

Þá vann Magdeburg fjögurra marka sigur á Flensburg, 33-29.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×