Viðskipti erlent

Nýtt tilboð flækir söluna á Liverpool

Auðmaður frá Singapore hefur lagt fram nýtt kauptilboð í enska úrvalsdeildarliðið Liverpool. Þetta flækir enn meir ruglingslega stöðuna í kringum söluna á liðinu en málið kemur til kasta breskra dómstóla í dag.

Auðmaðurinn sem hér um ræðir, Peter Lim, sendi inn tilboð í liðið í síðustu viku en því var hafnað. Hann hefur samt ekki gefist upp og hefur bætt nær 20 milljörðum kr. við fyrra tilboð sitt.

Eins og kunnugt er af fréttum hefur stjórn Liverpool samþykkt tilboð frá fjárfestingarfélaginu NESV, sem er í eigu John Henry eigenda hafnarboltaliðsins Red Sox í Boston, upp á 300 milljónir punda eða um 53 milljarða kr. Fyrrum aðaleigendur Liverpool, Tom Hicks og George Gillett hafa neitað að selja sinn hlut á þessu verði og verður réttað í málinu í dag.

Fyrir utan að bæta verulega við fyrra kauptilboð sitt hefur Lim lofað að fjarlægja að mestu skuldir Livrpool og láta Roy Hodgson framkvæmdastjóra liðsins fá um 8 milljarða kr. til liðsmannakaupa.

Samkvæmt frétt um málið á business.dk vill núverandi stjórn Liverpool ekki hlusta á tilboð Lim og er ákveðin í að selja NESV félagið. Ekki hvað síst vegna þess að NESV hefur lofað að borga 40 milljóna punda refsivexti sem Royal Bank of Scotland krefst en bankinn er aðallánadrottinn Liverpool.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×