Skoðun

Barnaverndarnefnd og Besti flokkurinn

Nýlega var skipað í nýja nefnd barnaverndarnefndar Reykjavíkur. Til að gera sér grein fyrir hinu veigamikla hlutverki barnaverndarnefndar ætla ég að fara nokkrum orðum um það hér.

Meðal verkefna nefndarinnar er að beita þeim úrræðum sem koma fram í barnaverndarlögunum til verndar börnum sem best eiga við hverju sinni og heppilegust þykja til að tryggja hagsmuni og velferð þeirra. Eitt af þessum úrræðum er úrskurðarvald nefndarinnar til að beita þvingunarráðstöfunum. Þvingunarráðstafanirnar lýsa sér til dæmis í töku barns af heimili án samþykkis foreldra og einnig getur nefndin krafist þess fyrir dómi að foreldrar séu sviptir forsjá barns.

Barnaverndarmál eru í eðli sínu afar viðkvæm og barnaverndarlöggjöfin hefur þá sérstöðu að hún felur í sér vald til handa barnaverndarnefndum að skerða friðhelgi fjölskyldunnar, en þessi friðhelgi er meðal grundvallarmannréttinda okkar samkvæmt stjórnarskránni. Í friðhelginni felst réttur fjölskyldunnar til að vera saman, að foreldrar fái að búa saman og fara með forsjá og annast uppeldi barna sinna án utanaðkomandi afskipta. Verkefni barnaverndarnefndanna geta verið þung, flókin og vandmeðfarin, þar sem fengist er við viðkvæma þætti í lífi fjölskyldna. Þar af leiðandi skiptir það sköpum að nefndirnar hafi yfir að ráða mjög hæfu starfsfólki sem hefur góða félags- og sálfræðiþekkingu og þar að auki góða yfirsýn, kunnáttu og reynslu á lagasviðinu er varðar barnaverndarmál sérstaklega til að geta sinnt hlutverki sínu á fullnægjandi hátt.

Af framansögðu er ljóst að barnaverndarnefndir eru í eðli sínu dómstóll sem getur kveðið upp úrskurði sem geta haft afdrifarík áhrif og afleiðingar á fjölskyldur.

Að öllu þessu sögðu var undirritaðri vægast sagt brugðið þegar Besti flokkurinn skipaði nýjan formann barnaverndarnefndar Reykjavíkur. Formaðurinn er nýútskrifaður lögfræðingur, útskrifaðist úr lagadeild HR í vor, með enga reynslu af vinnslu barnaverndarmála. Til samanburðar má geta þess að formenn barnaverndarnefndar Kópavogs og Hafnarfjarðar eru lögfræðimenntaðir með áralanga reynslu af barnaverndarmálum og setum í nefndum og ráðum.

Það verður að segjast eins og er að það að gera engar kröfur til svo mikilvægs starfs sem formaður barnaverndar Reykjavíkur er, er með öllu óábyrgt og vanhugsað af Besta flokknum og vanvirðing við barnafjölskyldur í Reykjavík, starfsfólk barnaverndar og málaflokkinn í heild sinni.




Skoðun

Sjá meira


×