Lífið

Gaf tökuliði 500 úlpur

johnny depp Keypti fimm hundruð vatnsheldar úlpur handa tökuliðinu.
johnny depp Keypti fimm hundruð vatnsheldar úlpur handa tökuliðinu.

Leikarinn Johnny Depp keypti fimm hundruð vatnsheldar úlpur handa tökuliði myndarinnar Pirates of the Caribbean 4. Tökur hafa staðið yfir í London að undanförnu og þar hefur rok og rigning gert tökuliðinu lífið leitt. Depp vildi sjá til þess að öllum liði vel í kringum sig og pungaði út rúmlega sjö milljónum króna í úlpurnar.

„Þetta var frábært fyrir móralinn og sýndi af hverju hann er einn yndislegasti náunginn í Hollywood," sagði heimildarmaður. Stutt er síðan Depp heimsótti grunnskóla í London í gervi sjóræningjans Jacks Sparrow við góðar undirtektir.












Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.