Formúla 1

De la Rosa og Kobayashi afhjúpa BMW

Kobayashi og de la Rosa svipta hulunni af nýja BMW bílnum.
Kobayashi og de la Rosa svipta hulunni af nýja BMW bílnum.

Spánverjinn Pedro de la Rosa og Kamui Kobayashi sviptu hulunni af nýjum BMW Sauber keppnisbíl í dag, en báðir ökumenn hafa tryggt sér sæti hjá liðinu.

Kobayashi vakti mikla lukkiuuhjá Toyota í fyrra, þegar hann tók sæti Timo Glock hjá liðinu þegar hann meiddist. Hann er eini japanski ökumaðurinn í Formúlu 1.

Pedro de la Rosa hefur verið þróunarökumaður McLaren í mörg herrans og reynsla hans ætti að koma mjög góðum notum við þróun bílsins. Hann hefur dreymt um að keppa í Formúlu 1 í mörg ár og kom um tíma til greina hjá Campos liðinu spænska en endaði hjá BMW.

BMW liðið rétt komst á ráslínuna eftir mikið brölt og það var Peter Sauber sem keypti liðið af BMW, sem ákvað að hætta í Formúlu 1.

"Ég vona að við getum fundið fleiri kostendur og ég er viss um að það mun gerast þegar við byrjum að keppa, kannski þegar nálgast Evrópumótin. Það er erfitt að finna kostendur um jól... En við erum með pening til að reka liðið 2010, en við verðum að gæta að framtíðinni líka", sagði Sauber.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×