Lífið

Vopnaleit á tónleikum Móra

engar stungur Móri segir að enginn þurfi að óttast stungur á styrktartónleikum hans í kvöld.fréttablaðið/anton
engar stungur Móri segir að enginn þurfi að óttast stungur á styrktartónleikum hans í kvöld.fréttablaðið/anton

„Það verður náttúrlega vopnaleit við hliðið. Það þarf enginn að óttast stungur eða neitt,“ segir rapparinn Móri.

Hann heldur styrktartónleika á Sódómu Reykjavík í kvöld til að borga væntanlegan lögfræðikostnað vegna átaka hans og Erps Eyvindarsonar þar sem hnífur var dreginn á loft. „Ég er atvinnulaus og get ekki borgað lögfræðingnum,“ segir hann og hvetur rappáhugamenn til að mæta á tónleikana, þar á meðal Erp. „Erpur og allir úr Rottweiler eru velkomnir svo lengi sem þeir borga aðgangseyrinn og styrkja gott málefni.“

Móri ætlar að syngja lög af fyrstu plötu sinni á tónleikunum sem verður einmitt endurútgefin á Gogoyoko.com í dag. Einnig verða nokkur ný lög sett í sölu á síðunni, sem Móri mun einnig syngja í kvöld. Hann segist hafa verið á fullu að semja tónlist að undanförnu en átta ár eru liðin síðan frumburðurinn Móri kom út.

„Ég á efni í svona þrjár plötur en ég er búinn að vera vinnandi og í skóla og erlendis. Maður hefur ekkert haft tíma fyrir tónlist því maður hefur verið að reyna að lifa eðlilegu lífi. Síðan kemur Erpur og fer að hrauna yfir mann í fjölmiðlum.“ Hann viðurkennir að hlutirnir hafi farið úr böndunum þegar þeir hittust en vill annars ekkert tjá sig um málið.

Síðustu tónleikar Móra voru í nóvember í fyrra á Jacobsen en hann stefnir á að vera duglegri við tónleikahald á næstunni. Moppa með gylltri áletrun verður í boði fyrir fyrstu tíu gestina sem mæta á Sódómu í kvöld. Húsið verður opnað klukkan 21 og er miðaverð 1.000 krónur. - fb






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.