Skoðun

Rányrkja á makríl

Makalaust er að hlusta á viðbrögð íslenskra ráðamanna og útvegsmanna við óskum Evrópuþjóða um að við höldum aftur af okkur við makrílveiðar. Makríll er nýja silfrið á Íslandsmiðum. Allir muna hvernig fór með síldina. Hún var hreinsuð upp og stofninn hefur ekki borið sitt barr síðan.

Nú skal makrílnum ausið og breytt í milljarða fyrir stórskuldugan ríkissjóð. Eins og venjulega láta Íslendingar skoðanir og óskir annarra þjóða sem vind um eyru þjóta. Við erum alltaf í fullum rétti, veiðum eins og okkur sýnist! Hvað eru þeir að blanda sér í málefni Íslands? Eitthvað á þessa leið talar ráðherra sjávarútvegsmála þessa dagana. Gott ef tilmæli Evrópusambandsins eru ekki orðin enn ein sönnun þess að við höfum ekkert að gera þangað inn. Þar vilja menn bara ráðskast með okkur, við fáum engu að ráða og fiskimiðin verða tekin af okkur og íslenskur landbúnaður liggur óbættur hjá garði! Það fer um mann hrollur við að hlusta á ráðherrann réttlæta rányrkju Íslendinga á makríl.

Hins vegar kemur ekki á óvart að LÍÚ rífi kjaft. Það gerir FJA alltaf þegar einhver dirfist að hafa aðrar skoðanir á fiskveiðistjórnunarmálum en hann sjálfur. Þetta er hrokinn sem kom okkur í þá stöðu sem við erum í núna, sá sami og ungu mennirnir sýndu, þeir sem völtuðu yfir Evrópu og keyptu upp fyrirtæki á lánum og aftur lánum. Evrópumönnum blöskraði hroki þeirra og hafa sýnt Íslendingum litla samúð eftir hrun. Þessir menn þóttust allt kunna, vita og geta og fóru svo á hvínandi hausinn með allt saman og þjóðfélagið riðaði til falls. Nú eru heilu sveitar­félögin í Bretlandi og Hollandi á barmi gjaldþrots vegna fjárglæfra Íslendinga.

Okkar menn í bönkunum höfðu stórfé af þessu fólki en svo þegar kemur að skuldadögum þá þykir það fáránlegt að ætlast sé til að þeir beri nokkra ábyrgð.

Vinstri grænir voru á þessum árum eins og rödd hrópandans í eyðimörkinni og virðast margir fastir í því hlutverki. En til að geta látið ríkissjórn tveggja flokka ganga upp þarf að gera málamiðlanir. Það virðast þeir margir eiga erfitt með.

Ég hélt þó alltaf að þeir væru nokkuð sannir umhverfissinnar. En málpípa þeirra í ráðuneyti sjávarútvegsmála hljómar svo sannarlega ekki þannig þessa dagana. Honum virðist að minnsta kosti ekki umhugað um verndun makrílstofnsins í samvinnu og sátt við þær nágrannaþjóðir sem byggt hafa á veiðum og vinnslu makríls um langt skeið.




Skoðun

Sjá meira


×