

Barn meðal þjóða
En við skulum horfa á björtu hliðarnar: Í fyrsta lagi dregur ákvörðun Ólafs fram að Ísland er í raun stjórnlaust. Forsetinn, þingið, ríkisstjórnin - einnig fjölmiðlar, meira að segja kirkjan - velkjast um í róstusömu almenningsálitinu, sem aftur stjórnast af sjálfsréttlætingu, heift og harmakveini um að allt sé öðrum um að kenna. Veikleikar hins formlega valds eru eðlileg afleiðing misbeitingar stjórnmálaforingja - hinna sterku manna - á stjórnkerfinu allt frá tíma heimastjórnar. Íslendingar eru Perónistar og Gaulistar. Þeir hafa meiri trú á töframönnum en valddreifðu stjórnkerfi. Af þeim sökum hafa stjórnmálahöfðingjar komist upp með að beygja undir sig flokka, sem aftur mylja undir sig ríkisstjórnir, sem aftur kúga þingið, dómstólana og stjórnkerfið.
Eftir hrun er ekki lengur samstaða um þetta peróníska sístem. En það er heldur engin samstaða um hvað á að taka við. Fyrir ári vaknaði krafa um stjórnlagaþing til að finna út úr hvert skyldi stefna. En þjóðin kaus frekar að pexa um Icesave. Ákvörðun Ólafs Ragnars dregur skýrt fram að ekki er hægt að fresta því lengur að endurskoða stjórnarskrá og byggja á henni nýtt lýðveldi. Það er gott að það sé orðið ljóst.
Í öðru lagi dregur ákvörðun Ólafs fram að það er ekkert að marka málflutning stjórnarandstöðunnar. Hún valdi sér Icesave af því hún taldi það gott tæki til að berja á ríkisstjórninni og minnka pólitíska inneign hennar. Í þeim leik skipti engu hvað var satt og hverju var logið. Stjórnarandstaðan lét í það skína, að í Icesave væru fundnar skuldir óreiðumannanna sem amma Davíðs vildi ekki borga.
Síðustu daga hefur hins vegar komið skýrt fram að enginn getur í alvöru lagt til að íslensk stjórnvöld hlaupi frá Icesave. Skuldina má rekja til samþykktar Alþingis á innistæðutryggingum - einskonar brunatryggingu innistæðna - og síðar með margítrekuðum yfirlýsingum ráðherra og Seðlabankastjóra um að íslenska ríkið myndi styðja kerfið ef illa færi.
Þegar síðan illa fór, settu stjórnvöld á neyðarlög sem sviptu kröfuhafa Landsbankans öllum eignum búsins og létu þannig lánardrottna Landsbankans borga fyrir digurbarkalegar yfirlýsingar. Lengra verður ekki hlaupið frá ábyrgðinni. Ef eignir Landsbankans duga ekki til, verður íslenska ríkið að standa við samþykktir Alþingis og yfirlýsingar ráðherra og Seðlabankastjóra. Ákvörðun Ólafs Ragnars afhjúpaði þetta og innihaldsleysi málflutnings stjórnarandstöðunnar.
Í þriðja lagi dregur ákvörðun Ólafs fram að Íslendingar eru ekki fullorðnir sem þjóð.
Ef til vill erum við of fámenn til að ná þroska. Ef til vill bjóða 320 þúsund hræður ekki upp á næga fjölbreytni í skoðunum og umræðu til að þroskast. Í það minnsta þá hafa Íslendingar alltaf hegðað sér sem barn í samskiptum þjóða - í besta falli sem unglingur. Það er ef til vill lýsandi að Íslendingar héldu sjálfstæðispartíið sitt þegar pabbi var ekki heima. Á meðan Íslendingar töldu sig hafa stöðu til þess, hótuðu þeir að fara heim með boltann - Miðnesheiði. Meira og minna öll samskipti Íslendinga við útlönd hafa verið sambland af mannalátum (stríð við Íraka, sæti í öryggisráðinu) og barnalegu suði (Marshall-aðstoð án stríðsskaða, barnafargjald með Norðurlandaráði og öðrum fjölþjóðlegum stofnunum).
Þegar við fæðumst njótum við skilyrðislausrar ástar foreldra okkar og í henni böðum við okkur, þar til einn daginn, að annað hljóð kemur í strokkinn. Þá segist mamma vilja knúsa okkur en aðeins ef við kúkum í koppinn. Sumir komast ekki yfir þetta áfall. Slíkir menn gera sífelldar bommertur sem þeir vilja ekki axla ábyrgð á en krefjast engu að síður ástar og aðdáunar. Ekki ætla ég að nefna dæmi um svona menn. Af umræðunni að dæma leynast þeir í hverju skoti.
Sem þjóð erum við í þessu hlutverki. Við komum til nágranna okkar með kúkinn í buxunum. Þeir brugðust vel við og sögðust tilbúnir að hjálpa okkur - en með því skilyrði að við hreinsuðum kúkinn. Þá rak þjóðin upp skaðræðisöskur og heimtaði að nágrannarnir tækju sig upp og knúsuðu án skilyrða.
Með ákvörðun sinni á þriðjudaginn gerðist Ólafur Ragnar forseti þessarar þjóðar. Og það er ágætt að hann hafi loks fundið sér þjóð.
Skoðun

Mannúð og hugrekki - gegn stríðsglæpum og þjóðarmorði
Ólafur Ingólfsson skrifar

Framtíð menntunar – byggjum á trausti, ekki tortryggni
Helga Kristín Kolbeins skrifar

Fé án hirðis
Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson skrifar

Gæludýr geta dimmu í dagsljós breytt
Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar

Myllan sem mala átti gull
Andrés Kristjánsson skrifar

Sjö mýtur um loftslagsbreytingar
Kristinn Már Hilmarsson,Elva Rakel Jónsdóttir skrifar

Pírati pissar í skóinn sinn
Helgi Áss Grétarsson skrifar

Ógnin sem við sjáum ekki – Hið falda tungumál ungu kynslóðarinnar á netinu
Birgitta Þorsteinsdóttir skrifar

Fáum presta aftur inn í skólana
Rósa Guðbjartsdóttir skrifar

Rösk og reiðubúin fyrir landsbyggðina
Hópur Röskvuliða skrifar

Icelandic Learning is a Gendered Health Issue
Logan Lee Sigurðsson skrifar

Goðsögnin um UFS-sjóði sem róttækar „woke"- fjárfestingar
Már Wolfgang Mixa skrifar

Framtíð Öskjuhlíðar
Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar

Vanhæfur Sjálfstæðisflokkur
Dóra Björt Guðjónsdóttir skrifar

Mælt fyrir miklum kjarabótum öryrkja og aldraðra
Inga Sæland skrifar

Mannréttindabrot og stríðsglæpir Rússa í Úkraínu
Erlingur Erlingsson skrifar

Áskorun til Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og Háskóla Íslands
Ríkharður Ólafsson,Styrmir Hallsson skrifar

Ákvarðanir teknar í Reykjavík – afleiðingarnar skella á okkur
Hópur Framsóknarmanna í sveitarstjórnum skrifar

Snjallborgin eða Skuggaborgin Reykjavík: Gervigreindarknúið höfuðborgarsvæði
Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar

Getur Sturlunga snúið aftur?
Leifur B. Dagfinnsson skrifar

Vaka stendur með Menntavísindasviði í verki
Gunnar Ásgrímsson skrifar

Vorbókaleysingar
Henry Alexander Henrysson skrifar

Er þetta í alvöru umdeild skoðun fámenns hóps?
Snorri Másson skrifar

Liðveisla fyrir öll
Atli Már Haraldsson skrifar

Réttur til endurtektarprófa: Jafnræði í námi fyrir alla stúdenta
Vera Mist Magnúsdóttir,Guðlaug Eva Albertsdóttir skrifar

Að standa við stóru orðin
Guðmundur Ari Sigurjónsson skrifar

Aðför að landsbyggðinni – og tilraun til að slá ryki í augu almennings
Ingibjörg Isaksen skrifar

Deyr mjólkurkýrin ef eigandi hennar fær eitt viðbótar mjólkurglas?
Þórður Snær Júlíusson skrifar

Kynlíf veldur einhverfu: Opið bréf til Háskóla Íslands og fjölmiðla
Guðlaug Svala Kristjánsdóttir,Margrét Oddný Leópoldsdóttir skrifar

Ég virði þig og þín mörk, virðir þú mig og mín mörk ?
Rakel Linda Kristjánsdóttir skrifar