Uppvísir að stórtæku svindli 10. september 2010 05:00 Gagnrýni Evrópusambandslanda á veiðar Íslendinga eru háværar. Hæst láta Skotar sem nú eru uppvísir að stórfelldri rányrkju. fréttablaðið/Óskar
Skipstjórar sex skoskra skipa hafa viður-kennt fyrir hæstarétti í Glasgow að hafa veitt og landað ólöglega tugum þúsunda tonna af makríl og síld að verðmæti 2,7 milljarðar króna. Einn skipstjóranna er varaformaður Samtaka skoskra uppsjávarveiðimanna (SPFA). Eins og kunnugt er hafa samtökin haft sig mjög í frammi í gagnrýni á makrílveiðar Íslendinga að undan-förnu. Frá þessu greina skoskir fjölmiðlar og þeirra á meðal The Scotsman. „Það er orðið þreytandi að lesa hverja fréttina á fætur annarri um ásakanir Skota á hendur okkur fyrir óábyrgar veiðar á makríl,” segir Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri LÍÚ. „Þessir sömu menn hafa orðið uppvísir að því að veiða ólöglega og landa tugum þúsunda tonna af makríl og síld.“ Í frétt á heimasíðu LÍÚ er það rifjað upp að Skotar ákváðu að sniðganga ráðstefnu Norrænu ráðherranefndarinnar í Færeyjum, þar sem veiðar á síld og makríl eru til umfjöllunar. Ólöglegu landanirnar sem um ræðir áttu sér stað á Hjaltlandseyjum á árunum 2002-2005. Alls reyndist um 200 brotatilvik að ræða. Rannsókn málsins var að sögn yfirvalda og fjölmiðla mjög tímafrek enda brotin „þaulhugsað samvinnuverkefni útgerðarmanna og vinnslu-aðila í landi“. - shá
Mest lesið „Þeir liggja hérna eins og hráviði út um allt“ Innlent Móðirin hafi þurft að sárbæna hann til að hitta barnið á spítala Innlent Unglingur stakk óboðinn gest í bakið til að verja fjölskyldumeðlim Innlent Koma strandaglópunum heim í kvöld Innlent Náðist á upptöku þegar skipulagðir þjófar tóku sjóðsvél Innlent Tveir handteknir vegna líkamsárásar Innlent Eitthvað búi að baki „meira en þrá hans eftir friði“ Innlent Segjast hafa uppgötvað nýjan lit sem ekki hefur sést áður Erlent „Það er eitthvað við það að vera hérna“ Innlent Engin tengsl milli þolenda og gerenda Innlent Fleiri fréttir Mótmæla brottvísun Oscars Gagnrýnir brattar hækkanir: „Þetta er bara dapurlegt“ Eitthvað búi að baki „meira en þrá hans eftir friði“ Engin tengsl milli þolenda og gerenda Tortryggni í garð Rússa og ungmennaráð sem fékk ekkert að segja Móðirin hafi þurft að sárbæna hann til að hitta barnið á spítala Handtekinn á Húsavík með tölvert magn fíkniefna Bora tilraunaholu til að framleiða heitt vatn á höfuðborgarsvæðinu „Það er eitthvað við það að vera hérna“ Koma strandaglópunum heim í kvöld Áhyggjuefni að brotaþolar treysti ekki dómstólum Unglingur stakk óboðinn gest í bakið til að verja fjölskyldumeðlim Fólskuleg líkamsárás og strandaglópar í suðri „Þeir liggja hérna eins og hráviði út um allt“ Tveir handteknir vegna líkamsárásar Við Íslendingar fórum bara á vertíð og drifum þetta af Náðist á upptöku þegar skipulagðir þjófar tóku sjóðsvél „Rosalega erfitt“ að keppa við innflutt grænmeti Stígvél og tækniframfarir Hótanir gegn háskólum og krossfestingar Gamall ráðherra vildi nýtt hús, en nýr ráðherra gæti fengið gamalt hús „Þetta er orðið pínu þreytt, tveir bílar á sex dögum“ „Ágæt ábending“ um bótaþega en tekur ekki undir allar athugasemdir fjármálaráðs Háholt sett aftur á sölu Skjólstæðingur heilbrigðisstofnunar veittist að starfsfólki Ráðherra bregst við athugasemdum, leikur ársins og ódýrt grænmeti „Stórtækir íbúðareigendur“ eiga 20 prósent íbúða í borginni Handtekinn grunaður um vasaþjófnað í miðborginni Engar reglur á Íslandi um hve mörg börn sæðisgjafar megi eignast Morðhótunum í garð kvenna fari fjölgandi Sjá meira