Golf

Fjölmenni fylgdist með Tiger æfa - myndir

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Alþýðlegur Tiger heilsar áhorfendum í dag.
Alþýðlegur Tiger heilsar áhorfendum í dag. Nordic Photos/AFP

Tiger Woods spilaði golf í fyrsta skipti í fimm mánuði fyrir framan áhorfendur í dag. Þá æfði hann á Augusta-vellinum þar sem Masters byrjar í vikunni.

Mikill fjöldi áhorfenda fylgdi Tiger eftir á æfingunni í dag. Þeir heilsuðu honum kurteislega en létu annars lítið í sér heyra.

Tiger var afar þakklátur fyrir hvert einasta klapp sem hann fékk á æfingunni en hann æfði með félaga sínum, Fred Couples.

Woods var annars í ágætu stuði á æfingunni, var alþýðlegur í fasi og tók nokkrum sinnum í hendur áhorfenda.

Gríðarleg öryggisgæsla var á vellinum meðan á æfingunni stóð og líklegast sú mesta á æfingu frá upphafi.

Tiger mun á eftir mæta sinn fyrsta opna blaðamannafund á árinu og er talið að sá fundur eigi eftir að reynast honum erfiðari en æfingin í dag. 180 blaðamenn verða á fundinum.

Hægt er að sjá myndir af æfingunni í dag í albúminu hér að neðan.



Nordic Photos/AFP
Nordic Photos/AFP
Nordic Photos/AFP
Nordic Photos/AFP
Nordic Photos/AFP
Nordic Photos/AFP
Nordic Photos/AFP
Nordic Photos/AFP
Nordic Photos/AFP
Nordic Photos/AFP



Fleiri fréttir

Sjá meira


×