Innlent

Landsdómur þarf að velja á milli hjóna

Björg Thorarensen
Björg Thorarensen
Ákveðið hefur verið innan Háskóla Íslands að Björg Thorarensen, prófessor í stjórnskipunarrétti, muni taka sæti í landsdómi. Það veldur því að annað hvort hún eða Markús Sigur­björnsson, hæstaréttardómari og eiginmaður Bjargar, verður að víkja úr sæti dómara þegar landsdómur kemur saman, þar sem hjón mega ekki sitja í dóminum.

Björg segir að ekki liggi fyrir hvort þeirra muni á endanum sitja í dóminum. Landsdómur muni taka afstöðu til þess, enda varla þeirra hjóna að ákveða sín á milli hvort þeirra taki sæti.

Í lögum um landsdóm segir að í honum skuli sitja þeir fimm hæstaréttardómarar sem lengstan starfsaldur hafi og átta menn kjörnir af Alþingi. Þá eiga að sitja í dóminum dómstjóri Héraðsdóms Reykjavíkur og prófessor í stjórnskipunarrétti við Háskóla Íslands.

Eiríkur Tómasson lagaprófessor var þar til nýlega titlaður prófessor í stjórnskipunarrétti við Háskóla Íslands, en með nýlegri breytingu á starfsskyldum hans varð breyting á. Eftir það kom aðeins Björg til greina til setu í dóminum fyrir hönd Háskóla Íslands. Varamaður Bjargar er Benedikt Bogason, dósent við lagadeild Háskóla Íslands og héraðsdómari.

Taki Markús ekki sæti í landsdómi verður einhver af þeim fjórum hæstaréttardómurum sem ekki eiga sæti í dóminum sökum starfsaldurs kallaður til. Ólafur Börkur Þorvaldsson hefur lengsta starfsreynslu þeirra fjögurra. Jón Steinar Gunnlaugsson hefur næst lengsta starfsreynslu, en þess ber að geta að Geir H. Haarde, sem ákæra á fyrir landsdómi, var settur dómsmálaráðherra þegar hann var skipaður í embætti hæstaréttardómara.

Páll Hreinsson hæstaréttardómari kemur ekki til greina til setu í landsdómi þar sem hann sat í rannsóknarnefnd Alþingis vegna bankahrunsins. Fjórði og síðasti dómarinn er Viðar Már Matthíasson, sem skipaður var dómari frá 10. september 2010, en hafði áður verið varadómari í forföllum Páls Hreinssonar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×