Kirkjan samþykkir ekki niðurskurðarkröfur Jón Hákon Halldórsson skrifar 7. ágúst 2010 20:11 Kirkjuþing eru haldin reglulega.
Kirkjuþing samþykkir ekki 9% niðurskurðarkröfu sem ríkisstjórnin gerir til þjóðkirkjunnar en samþykkir 5% niðurskurð með skilyrðum. Í ályktun sem samþykkt var á aukakirkjuþingi í dag segir að Þjóðkirkjan sé sjálfstæður lögaðili og grundvelli fjárhagslegra samskipta ríkis og kirkju verði ekki raskað nema með gagnkvæmum samningum sem bæði kirkjuþing og Alþingi samþykki. Kirkjuþingið krefst þess að samningsbundið og lögfest endurgjald ríkisins til þjóðkirkjunnar samkvæmt samkomulagi um kirkjujarðir og launagreiðslur presta og starfsmanna þjóðkirkjunnar frá 10. janúar 1997 og samningi um rekstrarkostnað vegna prestsembætta og prófasta, rekstrarkostnað biskupsstofu, framlag til kristnisjóðs og sérframlög til þjóðkirkjunnar, frá 4. september 1998, skerðist ekki meira en um 5% árið 2011 miðað við greiðslur úr ríkissjóði árið 2010. „Samþykki þjóðkirkjunnar á ofangreindri 5% skerðingu verði háð því að fjárhæð sóknargjalda árið 2011 breytist ekki frá árinu 2010 og verði 767 krónur á mánuði á hvern gjaldanda 16 ára og eldri, enda eru þau félagsgjöld í eðli sínu sem standa undir grunnþjónustu safnaðanna sem er mikilvægur þáttur í velferð samfélagsins. Samkomulag um niðurskurð fjárframlaga til þjóðkirkjunnar skal gert með fyrirvara um samþykki kirkjuþings og Alþingis og gildi einungis fyrir árið 2011," segir í ályktun Kirkjuþings.
Mest lesið Bjarni gefur ekki kost á sér og afsalar sér þingsæti Innlent Bandaríkin ein ástæða þess að Íslendingar eru eftirbátar Norðurlandanna Innlent Peningadeilur Fjólu og Eddu á dagskrá dómstóla Innlent Tugir svekktra barna þurftu að snúa við á Kjalarnesi Innlent Sætta sig ekki við neitt annað en að húsið verði rifið Innlent Sagður hafa þegið töskur fullar fjár frá Gaddafi Erlent Vildi aðstoð lögreglu við að fá vinninginn afhentan Innlent Bjarni farsæll en hefur alltaf átt sér óvildarmenn Innlent Hver tekur við af Bjarna? Þetta eru nöfnin sem oftast eru nefnd Innlent Þrír ráðuneytisstjórar fluttir til í starfi Innlent Fleiri fréttir Ýmsar ívilnanir til handa læknum á landsbyggðinni í skoðun Eldur í „flugeldagámi“ við Klambratún Má heita Amína en ekki Hó Aldrei verið skráð fleiri manndrápsmál Brýnt að bregðast hratt við vanda í orkumálum Bjarni farsæll en hefur alltaf átt sér óvildarmenn Viðbrögð við ákvörðun Bjarna og þrettándabrennur Hver tekur við af Bjarna? Þetta eru nöfnin sem oftast eru nefnd Eyjólfur réði aðstoðarmenn úr kosningateymi flokksins „Hann treysti mér fyrir stórum verkefnum og tækifærum“ Neitar sök í manndrápsmálinu í Neskaupstað Ekki búinn að taka ákvörðun um formannsframboð Tár féllu þegar Bjarni sagði þingflokknum frá ákvörðun sinni Tekur sætið og útilokar ekki formannsframboð „Helsti valdamaður landsins í meira en áratug“ Peningadeilur Fjólu og Eddu á dagskrá dómstóla Dagurinn eigi að snúast um ákvörðun Bjarna Allir sem hafi íhugað formannsframboð hljóti að gera það í dag Jón Gunnarsson kemur inn við brotthvarf Bjarna Hildur áfram þingflokksformaður Bjarni gefur ekki kost á sér og afsalar sér þingsæti Fjögur mál til landskjörstjórnar vegna alþingiskosninganna Lárus bætist í hóp aðstoðarmanna ráðherra Grái herinn fær áheyrn í Strassborg Veður gæti haft áhrif á brennuhald Vigdís á allra vörum og nýtt námskeið kynnt til sögunnar Tugir svekktra barna þurftu að snúa við á Kjalarnesi Landskjörstjórn ætlar að skila í næstu viku Þrír ráðuneytisstjórar fluttir til í starfi Sætta sig ekki við neitt annað en að húsið verði rifið Sjá meira