Fótbolti

Margrét Lára á skotskónum í fyrsta leik

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Mynd/Vilhelm

Íslendingaliðið Kristianstad fer vel af stað í sænska boltanum en liðið vann sinn leik í fyrstu umferð deildarkeppninnar í dag.

Kristianstad mætti þá Sunnanå og vann, 3-2.

Margrét Lára Viðarsdóttir skoraði þriðja mark Kristianstad í leiknum og það eftir sendingu frá Guðnýju Björku Óðinsdóttur.

Mark Margrétar kom Kristianstad í 3-1.

Margrét, Guðný og Erla Steina Arnardóttir voru allar í byrjunarliði liðsins að þessu sinni en því stýrir Elísabet Gunnarsdóttir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×