Viðskipti erlent

Markaðshlutdeild Iceland eykst á Bretlandseyjum

Markaðshlutdeild Iceland verslunarkeðjunnar á Bretlandseyjum jókst úr 1,7% og í 1,9% eða um 0,2 prósentustig á þriggja mánaða tímabili fram til 16. maí s.l. Þetta kemur fram í nýju yfirliti frá markaðsrannsóknafélaginu Nielsen.

Í frétt um málið í Guardian segir að þetta sé mesti vöxtur hjá Iceland á liðnu einu ár og að keðjan hafi staðið sig mun betur en samkeppnisaðilar hennar, Netto og Lidl, á lágvörumarkaðinum á Bretlandseyjum. Netto og Lidl halda markaðshlutdeild sinni með naumindum.

Sem kunnugt er af fréttum er Iceland nú í meirihlutaeigu þrotabús Landsbankans eða 67%. Þar að auki á Glitnir 10% hlut í Iceland.

Í svipuðu yfirliti frá Kantar Worldpanel kemur fram að hefðbundnum dagvöruverslunum hafi ekki gengið eins vel og lágvöruverslunum á síðustu þremur mánuðum að Tesco undaskilinni sem hélt sínum 30,6% markaðshlut. Þannig féll markaðshlutdeild Asda, sem er í eigu Wal-Mart, úr 16,9% fyrir ári síðan og í 16,8%. Ennfremur minnkað salan hjá Asda um 0,3% en það hefur ekki gerst síðan 2006.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×