Lífið

Þunglyndur grínari

Þunglyndur
Jim Carrey glímdi við erfitt þunglyndi.
Nordicphotos/getty
Þunglyndur Jim Carrey glímdi við erfitt þunglyndi. Nordicphotos/getty

Tímaritið Star Magazine heldur því fram að samband leikarans Jims Carrey og Jenny McCarthy hafi farið í vaskinn vegna þess að Carrey neitaði að taka geðlyfin sín. Carrey viðurkenndi árið 2004 að hann glímdi við þunglyndi og tæki lyfið Prozac til að halda sér í jafnvægi.

„Þetta var orðinn mikill tilfinningalegur rússíbani fyrir Jenny og hún var uppgefin. Þegar Jim datt í þunglyndi lét hann sig hverfa dögum saman og svaraði ekki símanum. Þetta var orðið of mikið fyrir Jenny til að takast á við," var haft eftir heimildarmanni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×