Fótbolti

Leikmenn Roma settir í fjölmiðlabann

Henry Birgir Gunnarsson skrifar

Ítalska félagið AS Roma hefur ekki farið vel af stað í vetur undir stjórn Claudio Ranieri þrátt fyrir miklar væntingar um gott gengi.

Francesco Totti, fyrirliði liðsins, var æfareiður eftir tapið gegn FC Bayern í Meistaradeildinni og gagnrýndi leikstíl liðsins sem var mjög varnarsinnaður.

Mikill kurr er hjá forráðamönnum félagsins eftir þessa uppákoma og leikmenn félagsins hafa nú verið settir í tímabundið fjölmiðlabann en forráðamennirnir óttast að allt verði vitlaust fari leikmenn að tjá sig of mikið.

Aðeins Ranieri og stjórnarmenn Roma munu því tala við fjölmiðla næstu daga.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×