Golf

Tiger snýr aftur á Masters

Henry Birgir Gunnarsson skrifar

Tiger Woods rauf loksins þögnina um framtíðaráætlanir sínar í dag og svaraði spurningunni sem allar hafa spurt síðustu vikur - hvenær snýr hann aftur. Svarið er fyrsta stórmót ársins, Masters-mótið.

„Ég vann mitt fyrsta stórmót á þessum stað og ég ber mikla virðingu fyrir þessu móti. Eftir langan og nauðsynlegan tíma fjarri golfvellinum þá tel ég mig loksins vera tilbúinn að snúa aftur á golfvöllinn," sagði Tiger í dag.

„Stórmótin hafa alltaf skipað sérstakan sess hjá mér og sem atvinnumaður get ég ekki sleppt því að mæta á Augusta. Jafnvel þó svo ég hafi ekki keppt í langan tíma."

Masters-mótið hefst þann 8. apríl næstkomandi. Woods hefur ekki keppt á móti síðan 15. nóvember.

„Ég hef verið í stífri meðferð síðustu tvo mánuði og sú meðferð mun halda áfram. Þó svo ég sé að fara að keppa aftur er enn ólokið mikilli vinnu með mitt líf.

„Þegar ég gat loksins farið að hugsa um golf aftur þá gerði ég mér strax grein fyrir að Masters væri fyrsta mótið sem ég gæti tekið þátt í," sagði Tiger Woods.

 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×