Innlent

Opna í Háskólanum í Reykjavík

Háskólinn í reykjavík World Class fer úr Orkuveituhúsinu og í nýtt húsnæði HR í Nauthólsvíkinni. fréttablaðið/stefán
Háskólinn í reykjavík World Class fer úr Orkuveituhúsinu og í nýtt húsnæði HR í Nauthólsvíkinni. fréttablaðið/stefán
Líkamsræktarstöðin World Class mun opna í húsnæði Háskólans í Reykjavík í byrjun september. Í staðinn hefur stöðinni í Orkuveituhúsinu verið lokað.

Stöðvar World Class verða því áfram níu talsins á höfuðborgarsvæðinu.

„Við lokuðum í Orkuveitunni á föstudag og erum búin að flytja tæki þaðan í HR,“ segir Björn Leifsson, framkvæmdastjóri World Class.

Nú er verið að mála, setja upp spegla og vinna að öðrum undirbúningi. Björn segir áætlað að opna í Nauthólsvíkinni helgina 3.-4. september.

Tækjasalur stöðvarinnar verður 200 fermetrar. „Þetta er ekki stór stöð en vonandi getum við stækkað hana í framtíðinni.“ Stöðin verður öllum opin þó hún sé staðsett í Háskólanum í Reykjavík.

Nemendur í skólanum munu þó hafa aðgang að stöðinni allan sólarhringinn þar sem þeir hafa aðgangskort að húsinu. „Þetta verður góð þjónusta við þá.“

- þeb




Fleiri fréttir

Sjá meira


×