Erlent

Órói í Búrkína Fasó

Forsetahöllin í Búrkina Fasó.
Forsetahöllin í Búrkina Fasó.
Mikill órói er í hernum í Búrkína Fasó en skothvellir hermanna heyrðust nærri forsetahöllinni í höfuðborg landsins í gær.

Landið liggur við hlið Fílabeinsstrandarinnar þar sem borgarastyrjöld geisar. Hún hefur orðið til þess að matarverð hefur hækkað gríðarlega í landinu. Forseti landsins reyndi að róa hermennina fyrr í mánuðinum þegar þeir mótmæltu vegna lágra launa og bágra aðstæðna.

Þá hefur almenningur einnig mótmælt háu matarverði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×