Erlent

Ekki fararsnið að sjá á Gaddafí

Staðfastur Ríkissjónvarpið í Líbíu sýndi Múammar Gaddafí, leiðtoga landsins, aka um höfuðborgina í gær.
Fréttablaðið/ap
Staðfastur Ríkissjónvarpið í Líbíu sýndi Múammar Gaddafí, leiðtoga landsins, aka um höfuðborgina í gær. Fréttablaðið/ap
Ekkert fararsnið virðist á Múammar Gaddafí, leiðtoga Líbíu, þrátt fyrir loftárásir aðildarríkja Atlandshafsbandalagsins og uppreisn í landinu. Gaddafí ók í gær um höfuðborgina Trípólí í brynvörðum jeppa og steytti hnefann í átt að himni.

Loftárásir voru gerðar á skotmörk í borginni í gær en engar staðfestar fregnir hafa borist af mannfalli. Líbíska ríkissjónvarpið, sem halt er undir Gaddafí, sagði einhverja óbreytta borgarar hafa særst í árásunum.- bj




Fleiri fréttir

Sjá meira


×