Innlent

Næturklúbbar ættu að greiða hærri skatt

Gunnar Smári Egilsson, formaður SÁÁ, leggur til að skattar af starfsemi næturklúbba geti staðið undir afleiðingum starfsemi klúbbanna, svo sem löggæslu og aðhlynningu sjúkra
Gunnar Smári Egilsson, formaður SÁÁ, leggur til að skattar af starfsemi næturklúbba geti staðið undir afleiðingum starfsemi klúbbanna, svo sem löggæslu og aðhlynningu sjúkra Mynd úr safni
„Kannski ættum við að rifja upp þetta hugtak; kostnaðarvitund. Og beita því á miðbæ Reykjavíkur. Þá myndum við skattleggja næturklúbbana svo þeir gætu staðið undir nauðsynlegri löggæslu, hreinsun gatna og aðhlynningu sjúkra. Stöðunum myndi þá hugsanlega fækka, opnunartíminn styttast og tekjur og gjöld úr sameiginlegum sjóðum vegna þessarar starfsemi leita jafnvægis."

Þetta segir Gunnar Smári Egilsson, formaður SÁÁ, í nýjum pistli á vef samtakanna.

Þar segir hann að það sé víðar en í bankaheiminum sem menn einkavæða gróða en þjóðnýta tap. Gunnar Smári tekur dæmi af þrátt fyrir háa skatta á bíla og bensín sé ólíklegt að þeir standi undir því sem samfélagið þarf að greiða vegna umferðar slysa og mengunar, svo eitthvað sé nefnt. Þá bendir hann einnig á hversu lágt verð er á sætindum og gosi, og fer því kostnaður vegna heilsutjóns af ofneyslu þeirra ekki inni í vöruverð heldur bitnar á almenningi sem heild.

Að mati Gunnars Smára ætti kostnaðarvitund þegar kemur að neyslu áfengis og vímuefna að leiða til hærri skattbyrði á næturklúbba.

„Við gætum þá varið meira fé úr sameiginlegum sjóðum til velferðar og sinnt þeim sem eru veikir og hjálparþurfi. Þótt umfangsmiklar stuðningsaðgerðir hins opinbera til eflingar amfetamínsdrifins næturlífs fram á morgun í miðbæ Reykjavíkur séu ekki færðar undir sérstakan lið á fjárlögum eða fjárhagsáætlunum; þá eru þær staðreyndir engu að síður. Og það er síendurtekin ákvörðun ríkis- og borgarstjórnar að styðja myndarlega við bakið á þessari starfsemi og auka stuðninginn fremur en hitt. Á sama tíma og þessir aðilar taka ákvarðanir um að skerða framlög til þeirra sem glíma við neikvæðar afleiðingar þessarar starfsemi."

Pistil Gunnars Smára má lesa í heild sinni á vef SÁÁ.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×