Innlent

Jarðhiti aukist mjög mikið undir Kötlu

Myndúr safni
Magnús Tumi Guðmundsson, jarðeðlisfræðingur við Jarðvísindastofnun Háskólans, flaug yfir Kötlu í dag ásamt sérfræðingum frá Veðurstofu Íslands og fulltrúa frá Almannavörnum. Hann segir að  greinileg aukning sé í jarðhita undir jöklinum og að Katla sýni nú ýmis merki sem túlka megi sem langtíma undanfara eldgoss.

Hann segir að á síðustu vikum hafi myndast aftur ketill  sem var horfinn og hafi ekki sést í nokkur ár. „Þar hefur jarðhiti tekið sig upp aftur þó ketillinn sé frekar grunnur ennþá en úr honum hefur vatn  runnið niður í Múlakvísl," segir hann en áin hefur verið fremur vatnsmikil undanfarið.

Magnús Tumi segir að aukning jarðhitans geti stafað af því að sprungur í berginu  gliðni í sundur eða að kvika hafi náð inn í rætur jarðhitakerfisins. „Það er ekki ósennilegt að það sé að gerast í Kötlu; að það sé kvika hafi náð upp á lítið dýpi og valdi jarðhita. En magn kviku sem kann að hafa troðist inn í bergið er ekki mikið."

Veruleg aukning hefur orðið í jarðskjálftavirkni á svæðinu í sumar og merki eru um útþenslu á litlu dýpi. „Þetta eru dæmigerðir langtíma forboðar eldgoss og en það þýði ekki endilega að þessi þróun endi með eldgosi á næstunni. „Slíkir forboðar eru mun algengari en sjálf eldgosin, því atburðarásin lognast stundum útaf án þess að leiða til goss. Enginn veit hvernig þetta verður núna en við þurfum að fylgjast vel með."

Magnús Tumi segir að reynsla síðustu 500 ára sé að Katla láti vita af sér nokkrum klukkstundum áður en hún fer að gjósa. „Við vitum að hún hefur skýra skammtíma forboða. Nokkrum klukkutímum fyrir gos fara af stað jarðskjálftar sem finnast í Mýrdal.  Ekkert slíkt í gangi núna. Það er ekki að sjá að kvika sé að brjóta sé leið upp á yfirborðið," segir hann.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×