Veiði

Færri tilkynningar um Sæsteinsugubit en í fyrra

Karl Lúðvíksson skrifar
Sæsteinsuga áföst við hýsil sem í þessu tilfelli er lax
Sæsteinsuga áföst við hýsil sem í þessu tilfelli er lax Mynd úr safni
Mun færri tilkynningar hafa verið um Sæsteinsugubit á laxfiskum núna í sumar miðað við í fyrra.  Á tímabili höfðu menn af þessu miklar áhyggjur, þá sérstaklega í ljósi þess að talið var að þessi fiskur væri farinn að hrygna í miklum mæli hér við land.  Ekki hafa fundist nein merki þess að einhver hrygning sé við landið en þetta þarf þó að rannsaka betur til að einhver niðurstaða fáist í málið.

Sæsteinsugann skilur eftir ljót sár á fiskinum sem dregur hann stundum til dauða.  Einu tilfellin sem við höfum fengið staðfest er einn lax í Soginu sem veiddist í júlí, 2-3 laxar með bit úr Rangánum og bleikja úr Eyjafjarðaránni.  Líklega eru tilfellin fleiri en það fer þó minna fyrir umræðunni en í fyrra.

Þess má geta að Sæsteinsuga þykir herramannsmatur í Evrópu.






×